Tíminn líður og flugkoma Flugmódelfélags Akureyrar verður á sínum stað í einni af vöggum flugsögu landsins, Melgerðismelum, laugardaginn 6. ágúst næstkomandi. Flogið verður á sama stað og fyrr eða austan Flugstöðvar Þórunnar Hyrnu.
Á staðnum verða léttar veitingar, kaffi og vöfflur. Sjóðandi heitt grill verður á staðnum ef einhver vill grilla sér snarl eftir flugkomuna en við munum ekki í þetta sinn verða með grillveislu á vegum FMFA þannig að matseðillinn verður í höndum hvers og eins. Einnig verður ölskápurinn opinn svo lítið beri á og hægt að nálgast eðalölið Kalda gegn vægu gjaldi.
Hafnar eru samningaumleitanir við veðurguðina, sem virðast vera eitthvað í nöp við norðanpilta þetta árið. Meira um það síðar
Svona var svo umhorfs í fyrra:
Með kveðju,
Árni Hrólfur
Flugkoma FMFA 2022 að skella á
Re: Flugkoma FMFA 2022
Það er vika í þetta og byrjaður að yfirfara vélina sem kemur með.
Hlakka til
Hlakka til
Gunnar H.
Atvinnu fiktari
Atvinnu fiktari
Re: Flugkoma FMFA 2022
Samningaviðræður við veðurguðina eru langt komnar...
Re: Flugkoma FMFA 2022
Stebbi og Gústi græjuðu þetta... alla vega í dag.
- Viðhengi
-
- 84271D20-5257-4634-8D82-264FC8CF21C7.jpeg (222.27 KiB) Skoðað 318 sinnum
Icelandic Volcano Yeti