Það var ræs snemma í morgun til að komast sem fyrst út í brekku með það fyrir augum að fá dálítinn tíma til að fljúga áður en öll hersingin færi á fætur. Við vorum komnir út í brekku rétt eftir að sólin fór að skína en þá var þar þegar mættur Darren frá Hong Kong og á meðan við vorum að græja módelin kom bandaríska liðið eins og það lagði sig með varamanni og öllum græjum. Engu að síður náðum við nokkuð mörgum flugum á fyrsta klukkutímanum en svo fór að bætast duglega í hópinn og þegar mest var þá voru 12 svifflugur í flugbiðröðinni.
Það blés vel strax í morgunsárið, 11+ m/s og kviður vel upp fyrir það inn á milli þannig að áður en um of var liðið á daginn þá var búið að fulllesta svifflugurnar af öllu látúninu og einnig var að ganga á Tungsten-ið. Við létum svo gott heita þegar klukkan fór að nálgast eitt leytið og héldum að sinna nokkrum erindum og draga björg i bú fyrir næstu daga.
attachment=10]IMG_1113.jpg[/attachment]
Vigsø - 29.september 2022
Vigsø - 29.september 2022
Icelandic Volcano Yeti
Re: Vigsø - 29.september 2022
Icelandic Volcano Yeti