Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3649
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

MIGHTY BARNSTORMER

Morguninn fór í að stilla vængjunum saman þannig að hægt væri að líma samsetningarrörin á rétta staði.
20230303_111725.jpg
20230303_111725.jpg (151.51 KiB) Skoðað 433 sinnum
Á teikningunni segir að það þurfi að hafa 2 1/4 tommu undur hvorn vængenda til að fá réttan aðhalla. Það þýðir að ef annar vængurinn liggur flatur á borðinu þá þurfi hinn vængendinn að vera 4 1/2 tommu frá borðinu, sem gerir nánast ellefu og hálfan sentimetra. Þetta er auðvitað allt of mikið fyrir væng með hallastýri og í leiðbeiningunum segir að það megii alveg lækka aðhallann um eina tommu fyrir hvorn væng. Ég setti því 52mm stól undir vængendann til að fá skaplegan aðhalla.
20230303_113230.jpg
20230303_113230.jpg (249.18 KiB) Skoðað 433 sinnum
Og þá er bara að líma. Ég notaði 60 mínútna epoxý lím til að hafa nægan tíma til að grípa inn í ef eitthvað ætlaði í skrúfuna. Sem betur fer fór allt vel og vængurinn fær að sitja til morguns.
20230303_113237.jpg
20230303_113237.jpg (160.12 KiB) Skoðað 433 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3649
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

CAP 21

CAPpinn smáskríður áfram. Hér er Elvar að setja strípur á hjólaskálarnar.
20230304_103500.jpg
20230304_103500.jpg (129.85 KiB) Skoðað 415 sinnum
MIGHTY BARNSTORMER

Vængirnir komnir sundur. Það er mjög subbulegt að saga kolfíber rör :(
20230304_094441.jpg
20230304_094441.jpg (111.79 KiB) Skoðað 415 sinnum
Og vængirnir eru ekki fyrr komnir í tvent en það þarf að búa til græjur til að halda þeim saman. Þetta kemur til með að hverfa undir balsaklæðninguna sem kemur á miðjuna. Það verður bara eitt lítið gat fyrir M3 bolta.
20230304_120851.jpg
20230304_120851.jpg (149.53 KiB) Skoðað 415 sinnum
Þessir tveir kubbar innihalda gengjur sem M4 boltar skrúfast í neðan frá í gegnum stífurnar.
20230304_120901.jpg
20230304_120901.jpg (131.32 KiB) Skoðað 415 sinnum
Og hér eru svo tvær myndir sem sýna skrokkinn með vænginn á. Ég setti stélið á til að sjá hvernig módelið kemur til með að líta út.
20230304_121027.jpg
20230304_121027.jpg (159.53 KiB) Skoðað 415 sinnum
Flott! Nú get ég farið að klára að setja balsaklæðninguna á vængina og frambrúnarlistann.
20230304_121300.jpg
20230304_121300.jpg (134.09 KiB) Skoðað 415 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3649
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

MIGHTY BARNSTORMER

Nú er allt komið í vængina sem þarf, svo að þá má fara að líma efra skinnið á. Hér er miðjan á hægri vængnum frágengin.
20230306_104658.jpg
20230306_104658.jpg (132.47 KiB) Skoðað 390 sinnum
Á meðan límið þornar, þá má kíkja aðeins í skrokkinn. Tankurinn sem ég ætla að nota passar ekki á milli mótorbúkkanna, svo ég þarf að höggva af þeim smá. Notaði beitt sporjárn og lítinn hamar. Beiki er ótrúlega harður viður!
20230306_105904.jpg
20230306_105904.jpg (145.01 KiB) Skoðað 390 sinnum
Og hér er tankurinn kominn á sinn stað. Nú þarf ég bara að gera gólf undir hann og festingar (franskur rennilá)s. Rafhlaðan gæti alveg komist undir tankinn ef þarf.
20230306_111624.jpg
20230306_111624.jpg (145.91 KiB) Skoðað 390 sinnum
Hér er mótorinn fastur. Ég boraði og snittaði fyrir M4 bolta beint í beikið, sem er alveg nógu hart og þétt til að taka snitt.
20230306_114513.jpg
20230306_114513.jpg (118.92 KiB) Skoðað 390 sinnum
Svo tálgaði ég og skar þangað til lokið féll eins og flís í rass yfir mótorinn. Ég þarf að taka aðeins meira svo að hljóðkúturinn komist á, en þetta heppnaðist betur en ég var að vona.
20230306_122702.jpg
20230306_122702.jpg (156.51 KiB) Skoðað 390 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3649
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

MIGHTY BARNSTORMER

Ég byrjaði morguninn á því að líma niður miðjuklæðninguna á vinstri vænginn. Ég raðaði fargi sem ég á ofan á vænginn till að halda honum niðri. Þetta er sandur í plastpokum með strigalímband í kring, um 8 kíló í allt.
20230307_103230.jpg
20230307_103230.jpg (160.09 KiB) Skoðað 371 sinni
Lokið ofan á skrokkinn er núna fest niður með 60mm löngum M4 bolta. Ég snittaði fyrir hann í álplötuna sem mótorinn er festur í.
20230307_103548.jpg
20230307_103548.jpg (104.29 KiB) Skoðað 371 sinni
Svo notaði ég tækifærið og setti fylliefni í stórar rifur fyrir aftan lokið.
20230307_104656.jpg
20230307_104656.jpg (156.53 KiB) Skoðað 371 sinni
Ég átti eftir að loka skrokknum undir mótornum (hökunni ??), svo ég formaði 20mm balsakubb þar til hann passaði í og límdi hann með trélími.
20230307_113731.jpg
20230307_113731.jpg (138.1 KiB) Skoðað 371 sinni
Það síðasta sem ég gerði í dag var að búa til plötuna fyrir servóin. Ég geri ráð fyrir fimm staðsetningum þó servóin verði bara þrjú.
20230307_120157.jpg
20230307_120157.jpg (150.04 KiB) Skoðað 371 sinni
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3649
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

MIGHTY BARNSTORMER

Nú er ég búinn að saga götin fyrir servóin 8-)
20230308_101145.jpg
20230308_101145.jpg (118.83 KiB) Skoðað 350 sinnum
Frambrúnarskinnið komið á vinstri vænginn. Lími þann hægri á morgun og set balsaræmur á rifin á þessum á meðan hinn þornar. Þetta er allt að koma. :lol:
20230308_101215.jpg
20230308_101215.jpg (158.79 KiB) Skoðað 350 sinnum
Rör komin fyrir stýrikaplana að hliðarstýrinu. Ég er enn að íhuga stýrisstöng fyrir hæðarstýrið.
20230308_111529.jpg
20230308_111529.jpg (154.47 KiB) Skoðað 350 sinnum
Búinn að forma "hökuna", þ.e. undir mótornum. Meira segja búinn að fylla að spinnerhringnum. Þarf að vísu að fylla aðeins meira, eins og sést.
20230308_113112.jpg
20230308_113112.jpg (133.17 KiB) Skoðað 350 sinnum
Merkti fyrir flugmannssætinu.
20230308_115148.jpg
20230308_115148.jpg (156.83 KiB) Skoðað 350 sinnum
Og hér er flugmaðurinn kominn á sinn stað. Ég setti undir þennan flugmann til að hækka hann smávegis, en ég held að það væri betra að taka það undan honum aftur. Vandamálið um staðsetningu rofans leystist, því ef ég set krossviðarplötu á ská þar sem mælaborð ætti að vera, þá get ég haft rofann þar. 8-)
20230308_115917.jpg
20230308_115917.jpg (150.36 KiB) Skoðað 350 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3649
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

Mikið að gera á fimmtudagskvöldi á verkstæðinu. Elvar er kominn með nýtt módel, svo við byrjum þar:

TOWER HOBBIES 40

Þessi ltla flugvél hefur ekki fengið mikla umhyggju síðustu 20 til 30 ár, en nú ætlar Elvar að gera hana flughæfa.
20230309_185508.jpg
20230309_185508.jpg (126.21 KiB) Skoðað 337 sinnum
Hann byrjaði á því að loka stórum götum á vængnum. Því miður er hvergi hægt að fá þessa sjálflímandi klæðningu sem er á henni, svo hann notar bara venjulega filmu.
20230309_202144.jpg
20230309_202144.jpg (147.49 KiB) Skoðað 337 sinnum
Unnið við stélið.
20230309_212324.jpg
20230309_212324.jpg (152.19 KiB) Skoðað 337 sinnum
Og svo smá strípur. Hún verður að vera kúl!
20230309_220024.jpg
20230309_220024.jpg (156.91 KiB) Skoðað 337 sinnum
MIGHTY BARNSTORMER

Hér er ég byrjaður að setja balsaræmurnar ofan á rifin.
20230309_094656.jpg
20230309_094656.jpg (154.82 KiB) Skoðað 337 sinnum
Flugmaðurinn kemur til með að hafa eitt stjórntæki fyrir framan sig: rofa.
20230309_105427.jpg
20230309_105427.jpg (121.71 KiB) Skoðað 337 sinnum
Hér eru allar ræmurnar komnar á rifin.
20230309_110107.jpg
20230309_110107.jpg (159.37 KiB) Skoðað 337 sinnum
Stélhjólastellið verður skrúfað á þennan krossvið aftast á skrokknum.
20230309_113236.jpg
20230309_113236.jpg (141.27 KiB) Skoðað 337 sinnum
Frambrúnirnar komnar á. Ekki mikið eftir við vængina.
20230309_211216.jpg
20230309_211216.jpg (158.78 KiB) Skoðað 337 sinnum
Ég velti mikið fyrir mér hvar inngjafarservóið ætti að vera. Ég get búið til sæti fyrir það hér, aftan við tankinn og þá get ég sett beina og óbrotna stöng frá servóinu að blöndungnum. Einfalt er best.
20230309_220700.jpg
20230309_220700.jpg (139.44 KiB) Skoðað 337 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3649
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

MIGHTY BARNSTORMER

Ég bjó til þessa fínu festingu fyrir inngjafarservóið og setti hana fyrir aftan tankinn. Nú þarf ég bara að búa til stöng sem nær að arminum á blöndungnum.
20230310_102220.jpg
20230310_102220.jpg (152.18 KiB) Skoðað 327 sinnum
Svo tálgaði ég og boraði lokið, setti hljóðkútinn á (tvö göt til að herða hann á) og opnaði gat til að skrúfa stillinálina í og af ásamt því að stilla ganginn í mótornum.
20230310_111549.jpg
20230310_111549.jpg (158.53 KiB) Skoðað 327 sinnum
Frambrúnarlistarnir á vængjunum eru nú formaðir og fínir.
20230310_114500.jpg
20230310_114500.jpg (121.45 KiB) Skoðað 327 sinnum
Og þá er hægt að fara að búa til vængendana.
20230310_121055.jpg
20230310_121055.jpg (150.13 KiB) Skoðað 327 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3649
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

TOWER HOBBIES 40

Elvar er enn að fitla við þennan litla fína (og gamla) trainer.
20230311_103230.jpg
20230311_103230.jpg (110.27 KiB) Skoðað 305 sinnum
Fleiri strípur.
20230311_113633.jpg
20230311_113633.jpg (127.22 KiB) Skoðað 305 sinnum
MIGHTY BARNSTORMER

Búinn að tengja servóið við blöndunginn. Tengið þurfti að vera á hvvolfi til að lokið kæmist á.
20230311_103141.jpg
20230311_103141.jpg (151.99 KiB) Skoðað 305 sinnum
Hryggurinn kominn á vélarlokið. Þetta setur svakalegan svip á módelið.
20230311_112408.jpg
20230311_112408.jpg (149.32 KiB) Skoðað 305 sinnum
Vængendarnir komnir á. Nú vantar bara smá frambrúnarklæðningu áður en hægt er að pússa.
20230311_115247.jpg
20230311_115247.jpg (152.74 KiB) Skoðað 305 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3649
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

MIGHTY BARNSTORMER

Nu eru báðir vængendar tilbúnir undir meiri pússningu. Ég þarf bara að ganga frá vængrótunum og þá get ég skorir hallastýrin frá og pússað vandlega undir dúkinn.
20230313_110659.jpg
20230313_110659.jpg (121.99 KiB) Skoðað 270 sinnum
Hryggurinn á mótorlokið er nú fastur á. Ég þarf að fá mér gott sparsl til að renna með honum og pússa þetta fínt.
20230313_110725.jpg
20230313_110725.jpg (124.73 KiB) Skoðað 270 sinnum
Ég byrjaði að forma hrygginn á skrokkinn. Ég læt hann mjókka aftur að stélkambinum, en ekki fara meðfram kambinum eins og sýnt er á teikningunni. Nú á ég bara eftir að taka rúnninginn og búa til hauspúðann fyrir flugmanninn.
20230313_115213.jpg
20230313_115213.jpg (145.08 KiB) Skoðað 270 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3649
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

MIGHTY BARNSTORMER

Vængræturnar eru úr þunnum krossviði, sem er festur á balsarifið með epoxý kvoðu sem ég blandaði microballoons við. Ég bara vona að stangirnar séu ekki að festast líka.
20230314_094812.jpg
20230314_094812.jpg (151.19 KiB) Skoðað 245 sinnum
Ég þarf að verja mótorhúsið með epoxý kvoðu, en fyrst mála ég það grænt. Flugmannsklefinn er líka grænn.
20230314_104051.jpg
20230314_104051.jpg (154.37 KiB) Skoðað 245 sinnum
Ég klippti framrúðu úr Klakaflösku. Gæti orðið flott.
20230314_110512.jpg
20230314_110512.jpg (159.18 KiB) Skoðað 245 sinnum
Servóbakkinn límdur í.
20230314_112300.jpg
20230314_112300.jpg (133.69 KiB) Skoðað 245 sinnum
Stýrisstöngin fyrir hæðarstýrið. Ég þarf bráðum að finna móttakara og byrja að tengja stýri.
20230314_115435.jpg
20230314_115435.jpg (151.55 KiB) Skoðað 245 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara