Síða 9 af 11
Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 22. Júl. 2023 17:17:26
eftir Gaui
MIGHTY BARNSTORMER
Flugbrautin við Skáldalæk, 22. júlí, 2003.
Barnstormerinn flaug eins og engill. Hægt og virðulega á meðan hreyfillinn gekk, en sveif eins og sviffluga þegar dó á honum. Ætlaði bara alls ekki að lenda.
- 20230722_101948.jpg (142.38 KiB) Skoðað 1762 sinnum
- 20230722_115016.jpg (142.46 KiB) Skoðað 1762 sinnum
- 362875982_821788139395001_5821761563651944463_n.jpg (120.11 KiB) Skoðað 1762 sinnum
Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 26. Ágú. 2023 12:54:11
eftir Gaui
SKY 120
Þegar tvö flugmódel eru á sama stað á sama tíma, þá verður eitthvað að gefa eftir. SKY 120 skaddaðist á vinstri væng við að rífa stélið af flugvélinni hans Elvars. Sú tók lóðbeint strik í jörðina og stakkst svo harkalega niður að það tók Elvar góðan hálftíma að grafa mótorinn upp. Ég náði stjórn á SKY 120 og tókst að lenda eftir margar tilraaunir til að krassa.
Vinstri vængurinn ofanfrá. Þetta er ekki svo svakalegt, hugsaði ég.
- 20230820_114110.jpg (133.49 KiB) Skoðað 1712 sinnum
Ég byrjaði að gera við vænginn í dag og þá kom í ljós að tjónið var aðeins meira en ég hélt:
- 20230826_111527.jpg (141.04 KiB) Skoðað 1712 sinnum
Búinn að heinsa frá að neðan og líma það seem var lausst, en féll í gamlar skorður.
- 20230826_115720.jpg (147.06 KiB) Skoðað 1712 sinnum
Meira seinna
Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 31. Ágú. 2023 13:07:37
eftir Gaui
Nytt rif komið á sinn stað og fölsk frambrún. Ég á ekki léttkrossvið, svo 4mm birkikrossviður verður að duga.
- 20230830_103615.jpg (155 KiB) Skoðað 1661 sinni
Efri balsaklæðningin límd niður.
- 20230830_113607.jpg (156.41 KiB) Skoðað 1661 sinni
Smá fylliefni áður en ég pússa allt slétt.
- 20230831_091022.jpg (149.69 KiB) Skoðað 1661 sinni
Neðri balsaklæðningin límd á.
- 20230831_094629.jpg (156.21 KiB) Skoðað 1661 sinni
Og svo frambrúnn. Nú þarf þetta allt að þorna og svo hefla ég allt til og pússa.
- 20230831_104352.jpg (106.93 KiB) Skoðað 1661 sinni
Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 1. Sep. 2023 11:47:56
eftir Gaui
Ég uppgötvaði þegaar ég var að byrja að pússa að tvær lamir höfðu brotnað.
- 20230901_102106.jpg (153.62 KiB) Skoðað 1656 sinnum
Þetta hefur gerst áður, svo ég vissi hvað ég átti að gera: skera brotnu lamirnar í burtu svo ég getir límt nýjar í.
- 20230901_105216.jpg (123.33 KiB) Skoðað 1656 sinnum
Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 1. Sep. 2023 17:25:15
eftir Sverrir
Gaui skrifaði: ↑31. Ágú. 2023 13:07:37
Smá fylliefni áður en ég pússa allt slétt.
Hvaða fylliefni er þetta?
Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 4. Sep. 2023 11:57:17
eftir Gaui
Sverrir skrifaði: ↑1. Sep. 2023 17:25:15
Hvaða fylliefni er þetta?
Það er þetta. Það fæst í Víkurkaupum á Dalvík.
- 20230904_090752.jpg (116.86 KiB) Skoðað 1606 sinnum
Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 4. Sep. 2023 12:01:16
eftir Gaui
Enn er reynt að laga vænginn á SKY 120.
Ég límdi lamir í götin og skar svo til balsakubba sem ég límdi ofan á þær.
- 20230904_093709.jpg (144.03 KiB) Skoðað 1605 sinnum
Svo skar ég ofanaf þeim og pússaði niður. Ekki erfitt.
- 20230904_111725.jpg (146.27 KiB) Skoðað 1605 sinnum
Nú þarf ég bara að klæða vængendann upp á nýtt og módelið ætti að vera tilbúið til flugs.
Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 5. Sep. 2023 13:03:58
eftir Gaui
Þá er vængurinn tilbúinn:
- 20230905_102900.jpg (115.01 KiB) Skoðað 1590 sinnum
Nú er komið upp annað vandamál: annar af boltunum sem halda hljóðkútnum er laus. Ég lenti í þessu áður og þá setti ég málm-epoxý í götin og snittaði fyrir M5 boltum í saðinn fyrir M4. Nú er annar þeirra laus aftur. Í staðinn fyrir að fikta eitthvað við Zenoah 38 mótorinn, þá ætla ég að setja DLE35 í staðinn.
Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 6. Sep. 2023 12:55:41
eftir Gaui
Nú er nýr mótor kominn í SKY 120: DLE 35 RA.
- 20230906_100127.jpg (155.79 KiB) Skoðað 1571 sinni
Gamla vélarhlífin passar á aftur, en það eru óþörf og of stór göt á henni. Ég er búinn að panta nýja frá SLEC.
- 20230906_114851.jpg (140.11 KiB) Skoðað 1571 sinni
Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 12. Sep. 2023 12:55:51
eftir Gaui
Það er einn galli við að skipta úr Zenoah í DLE: það er um 1200 gramma munur á þyngd á þessum mótorum. Zenoah er um 2300 grömm, en DLE er bara 1100 grömm.
Til að jafnvægisstilla módelið byrjaði ég á að grafa allt blý úr afturendanum á SKY.
- 20230912_111742.jpg (135.2 KiB) Skoðað 1526 sinnum
Mér fannst þetta vera alveg hellingur þegar ég tróð þessu þarna í, en þetta reyndust bara vera 125 grömm. Nú er blýið farið, en ég þarf líklega að troða um kílói af blýi fyrir aftan mótorinn.
- 20230912_113653.jpg (119.28 KiB) Skoðað 1526 sinnum