Síða 10 af 10
Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 13. Sep. 2023 13:30:24
eftir Gaui
Eftir flug Extra 330S kom í ljós að dúkurinn undir módelinu hafði losnað og svo fokið í burtu. Elvar er nú byrjaður að þrífa módelið almennilega með rauðspritti og svo setja nýja filmu í stað þeirrar sem fór á flakk.

- 20230913_104007.jpg (154.88 KiB) Skoðað 349 sinnum

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 22. Sep. 2023 13:16:55
eftir Gaui
SKY 120 kominn með nýjan mótor sem er miklu léttari en sá gamli, ballanseringin komin í og vélarhlífin á.

- 20230922_102511.jpg (141.58 KiB) Skoðað 329 sinnum

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 6. Okt. 2023 13:41:54
eftir Gaui
TF-ÁST
Ég er búinn að vera með Cessna 140, TF-AST undir vinnuborðinu í mörg ár. Ég hætti að smíða hana þegar ég sá að ég hafði búið til opna grindarvængi, en ASTin var með vængi heilklædda með áli.
Til að halda áfram með þessa vél pantaði ég 0,3mm ProSkin frá
Mikka Ref (Mick Reeves) í Englandi. ProSkin er pressaður glefíber í þunnum blöðum. Í morgun skar ég niður ProSkin sem passar undir vængin og lauk við að búa til lok fyrir servóin.

- 20231006_105418.jpg (157.16 KiB) Skoðað 307 sinnum

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 9. Okt. 2023 19:22:06
eftir Gaui
TF-ÁST
Síðasta rifjabilið á vængjunum er í boga í tvær áttir, en ProSkin getur ekki þakið svoleiðis. Þess vegna þurfti ég að fylla upp í þessi bil með balsa. Þegar límið er hart mun ég pússa þetta eins og hægt er og svo klæða með glerfíberdúk og kvoðu.

- 20231009_105633.jpg (140.69 KiB) Skoðað 265 sinnum

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 27. Okt. 2023 11:41:12
eftir Gaui
TF-ÁST
Ég fékk ProSkin frá Mikka Ref (
neðarlega á síðunni) og er hér að líma það á vængina. Best er að nota freyðilím (PU) og gott farg.

- 20231027_105922.jpg (141.38 KiB) Skoðað 232 sinnum

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 11. Nóv. 2023 12:00:29
eftir Gaui
TF-ÁST
Hér er ég búinn að fylla að PróSkinninu og pússa það niður (að mestu) Þetta verður fallega slétt og fínt.

- 20231111_100643.jpg (140.86 KiB) Skoðað 171 sinni
Á efra skinnið langar mig að setja plötuskil. Það er gert með því að leggja niður nokkur lög af límbandi og svo draga fylliefni að því. Ég pússað það svo niður að límbandinu og þá eru komin plötuskil.

- 20231111_102210.jpg (131.39 KiB) Skoðað 171 sinni
Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 15. Nóv. 2023 12:34:38
eftir Gaui
TF ÁST
Vængirnir pússaðir og lokaumferð af grunni komin á. Stýrin slétt og fín.

- 20231115_114342.jpg (147.34 KiB) Skoðað 105 sinnum
Byrjaður að setja hryggina á stýrin. Þannig eru Cessnur.

- 20231115_120123.jpg (128.72 KiB) Skoðað 105 sinnum

Re: Smíðað í kjallara stórfyrirtækis á Dalvík
Póstað: 2. Des. 2023 14:03:07
eftir Gaui
LANIER STINGER
Elvar er að vinna við Lanier Stinger sem hann fékk að Sunnan. Módelið var svart og smá illa farið. Elvar reif af því alla filmu, sprautaði upp á nýtt og er nú að klæða það upp á nýtt í rauðu og hvítu.

- 20231202_112226.jpg (103.89 KiB) Skoðað 22 sinnum
