DAGUR 1
Það bar til um þessar mundir að boð kom frá módelmanni á Suðurlandi að skrásetja skyldi smíði á flugmódeli. Hann sendi mér módelið sem ég átti að smíða og var það SKYLARK frá West Wings.
Þegar ég opnaði kassann kom þetta í ljós:
Ég hrissti af mér flensuna sem hefur böggað mig í allt of marga daga og kom mér fyrir á verkstæðinu í kjallar stórfyrirtækis á Dalvík. Til að byrja með tók ég saman alla elektrónik sem þarf í þetta módel og kom því fyrir í safnkassa. Smáhlutir í módelið geta einnig farið í þennan kassa.
Allir hlutir eru út skornir, en enginn er merktur á plöturnar, svo ég þurfti að bera saman teikningu í leiðbeiningunum og brettin úr kassanum. Því miður höfðu öll vængrifin losnað úr brettinu, þannig að til að merkja þau þurfti ég að raða þeim í brettið á ný.
þá var hægt að merkja.
Hér eru svo öll vængrifin sem þar í báða vænghelminga. Þetta tók alveg þokkalegan tíma.
Ég ákvað að byrja á stélinu. Stélkamburinn var lítill og léttur og ég raðaði honum saman með stöngum úr kassanum. Ég notaði mest gula trélímið frá Jóni V. og Tomma, en líka smá sekúndulím.
Stélflöturinn var álíka auðveldur, bara smá stærri.
Þetta fær að harðna til morguns og þá pússa ég þetta til og raða skrokknum saman.
gaui
SKYLARK
Re: SKYLARK
DAGUR 2
Flensan hefur sett smá strik í smíðina og ég hef ekki haft heilsu til að fara á verkstæðið fyrr en nú. En nú skal haldið áfram.
Stélið var losað upp og pússað slétt. Nú vantar bara að forma það smávegis. Ég geri það áður en ég klæði það. Hægri skrokkhliðin er smíðuð á teikningunni, sett saman úr framstykki og 3 x 4,5mm balsa prikum. Hér er ég að setja glært límband á öll samskeyti (gleymdi auðvitað einu) svo ég geti gert vinstri hliðina alveg eins. Hér er vinstri hliðin buin til ofan á þeirri hægri. Og hérna eru hliðarnar báðar límdar, alveg eins, sem er frekar mikilvægt. Fyrstu skrokkrifin eru hér límd í hægri hliðina. Það er mikilvægt að þau séu lóðrétt á hliðina. Þegar þetta er þurrt verður vinstri hliðin límd á líka, Meira um það næst (ef ég held heilsu).

Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Re: SKYLARK
DAGUR 3
Skrokkurinn heldur áfram:
Vinstri hliðin er límd ofan á rammana. Vinkillinn sýnir hvort hliðarnar eru réttar eða ekki. Næst eru framrifin límd í og skrokkurinn tekinn saman að framan. Vængsætið er líka límt á sinn stað. Afturhluti skrokksins er límdur saman ofan á teikningunni til að öruggt sé að hann taki ekki á sig form banana. Þverböndin eru límd í ofan og neðan til að skrokkurinn fái rétt lag. Næst eru það hálfrifin ofan á hrygginn. Og svo langböndin á bakið. Botninn að framan er sýndur á teikningunni og skorinn út. Þá passar hann alveg sæmilega. Og hér er hann kominn báðum megin og skrokkurinn orðinn nokkuð stífur og réttur. Meira á morgun. g

DAGUR 4
Ýmis smá verk á skrokknum geta tekið mjög langan tíma.
Hér er ég búinn að fella 1,5mm balsa inn í afturhlutann þar sem stýriskaplarnir eiga að koma. Ég er líka búinn að merkja fyrir þeim. Og hér eru stýriskaplarnir komnir á sinn stað í skrokknum. Ég lét þá enda ofar en sýnt er á teikningunni því það getur verið afar erfitt að komast að servóum sem eru mjög djúpt ofan í skrokknum. Ég bætti við smá bút fram í nefið, sem ekki er sýndur á teikningunni. Það er vegna þess að mig langar til að prófa flugtog og til þess verður smá kapalbútur að liggja fram í nefið. Lykkja á bandi kemur í gegnum gat á hliðinni og kapallinn heldur í hana á meðan togið á sér stað. Ég athugaði líka hvort rafhlaðan kæmist fram í nefið og stækkaði gatið í rifinu fyrir hana. Það verður togkrókur neðan á skrokknum og hann skrúfast í krossviðarbút sem ég límdi í botninn. Hann verður við hliðina á skíðinu sem kemur undir botninn. Hér eru komnir bitar fyrir servóin. Það verða þrjú servó í skrokknum: hæðarstýri, hliðarstýri og sleppikrókur. Hér er ég búinn að setja balsa ofan á nefið og forma hann til. Það síðasta sem ég gerði áður en ég fór hem var að líma krossviðarform og balsakubba fyrir blá nefbroddinn á skrokknum. Meira næst.

DAGUR 5
Í dag klárum við skrokkinn og byrjum á vængnum.
Hér er ég búinn að pússa nefið til svo það er fallega rúnnað. Flugmannsklefanum er raðað saman á skrokknum. Nú vantar bara kúpuna, sem er úr glæru plasti. Ég þarf líklega að finna einhvern flugmann til að sitja þarna. Hér er ég að byrja að raða saman hægri vængnum. Maður byrjar á því að búa til afturbrúnina. Svo leggur maður niður vængbitann og raðar rifjunum á. Rifin eru öll fræst út úr krossviði. Gallinn við það er að öll inn-horn eru rúnnuð af því fræsitönnin er rúnnuð. Þá þarf maður að nota trekanntþjöl til að laga hornin. Hér sést að ég er búinn að laga raufina fyrir neðri bitann, en sú efri er enn rúnnuð. Þetta þarf að gera við öll rifin (hellingur af þeim) og það tekur langan tíma. Hér eru hlutarnir í vænginn tilbúnir og bíða bara eftir að ég raði þeim saman. Meira seinna.

Dagur 6
Annar vængurinn langt kominn.
Ekki mikið um að vera í dag: Ég limdi niður rifin á neðri bitann og lyfti endarifinu upp um 3mm áður en ég setti efri bitann í. Svo setti ég efri balsaklæðninguna á frambrúnina. Þetta þarf að þorna til morguns. Ég formaði líka stélið og pússaði, en mundi ekki eftir að taka myndir af því.

Dagur 7
Hægri vængurinn nánast kláraður.
Nú gat ég límt neðra skinnið á farmbrúnina og svo pússað bæði efra og neðra skinn að rifjunum undir. Svo límdi ég listann fyrir frambrúnina framan á vænginn. Þetta þarf að fá að þorna almennileg, svo ég pússa það ekki til fyrr en á morgun. Ég límdi mjúkan 12x12mm kubb á endann og forma hann líka til á morgun. Og svo sat ég góða stund í þægilegum stól og undirbjó rifin fyrir vinstri vænginn. Meira seinna.

DAGUR 8
Hægri vængurinn kláraður og byrjað á þeim vinstri.
Hér er ég búinn að pússa til og forma hægri vænginn. Nú á ég bara eftir að setja servó í vænginn, en við komum að því síðar. Hér er ég byrjaður á vinstri vængnum. Þetta er að öllu leiti eins og sá hægri, þannig að ég set bara inn "öðruvísi" myndir. Vængrótin með aðhallamátann og kaffibollann á sínum stöðum: tvent sem er algerlega nauðsynlegt þegar vængir eru smíðaðir. Ég veit ekki hvort það þarf svona mikið farg, en það er ekkert verra að halda vængnum niðri. Og hér er vængendinn. Meira næst.

DAGUR 9
Þetta var fyrsta vers, nú kemur annað vers og það er alveg eins.
Þegar maður er búinn að smíða einn væng, þá verður hinn alveg eins, nema að það er á hina höndina.
Hérna er klæðningin tilbúin á vinstri vænginn. Klæðningin límd á vængrótina. Afturbrún á vængendanum lyft upp um 3 mm til að fá vængsnúning (washout). Og frambrúnarklæðningin komin á. Meira næst.

DAGUR 10
Vængirnir límdir saman.
Síðustu skrefin á vinstri vængnum til að hann verði kominn jafnt hinum hægri: Hér er ég að snyrta til efra skinnið svo ég geti límt það neðra á sinn stað. Og svo er frambrúnin límd á. Vængendinn settur á sinn stað. Nú eru vængirnir komnir á sama ról og hér er ég að fitta aðhallabitann í vængræturnar: Og þá er ekkert annað en að lyfta öðrum vængendanum upp um 95mm eins og tilgreint er á teikningunni og sulla nóg af epoxí lími þar sem þeir snertast. Taktu eftir að ég hafði rænu á að setja plast undir svo vængirnir límdust ekki fastir við brettið. Meira síðar.