Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 37

Það er komið að því að setja gluggakarmana á. Hér er karmurinn staðsettur á bakborðshliðinni og búið að strika á balsann.
20240129_093905.jpg
20240129_093905.jpg (141.18 KiB) Skoðað 538 sinnum
Hér er svo búið að gera annað strik 3 mm utar. Þarna verður skorið og þá fellur glæra plastið innan í karminn.
20240129_093923.jpg
20240129_093923.jpg (148.21 KiB) Skoðað 538 sinnum
Og nú er búið að skera úr gluggunum. Ég get notað þessa afskurði til að klippa til glæra plastið í gluggana.
20240129_094905.jpg
20240129_094905.jpg (141.87 KiB) Skoðað 538 sinnum
Þá er bara að líma gluggakarmana fasta. Þetta er 0,8 mm krossviður.
20240129_111412.jpg
20240129_111412.jpg (137.41 KiB) Skoðað 538 sinnum
Á meðan hliðargluggarnir þorna er hægt að búa til þakið. Það virkar sem lok, smeygist undir bitann að framan og skrúfast fast í bitann að aftan. Á sumum Cessnum voru gluggar í þakinu, en ekki á TF-FRÚ.
20240129_115557.jpg
20240129_115557.jpg (128.62 KiB) Skoðað 538 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 38

Til að líma gluggakarmana á flugklefann þar sem hann er bogadreginn þarf að nota öflugar klemmur og mikið af vatni. Vatnið mýkir krossviðinn og kemur í veg fyrir að hann klofni á meðan maður leggur hann niður.
20240130_104056.jpg
20240130_104056.jpg (146.79 KiB) Skoðað 493 sinnum
Á meðan límið þornar get ég sett flúr á stélkambinn og hliðarstýrið. Svona flúr er ekki á öllum Cessnum, en TF-FRU er með það, svo ég verð að búa það til.
291823.jpg
291823.jpg (131.12 KiB) Skoðað 493 sinnum
Ég byrjaði á því að setja hliðarstýrið á og svo límdi ég 8 x 5 mm balsa á báðar hliðarnar. Svo skar ég 3 x 3 mm lista sem ég límdi fyrir ofan og neðan hina. Ég pússaði þetta þar til allt var orðið rúnnað. Límbandið afmarkar þar sem plötuskil eru og ég pússa niður að því til að fá smá hrygg, eins og sést á myndinni fyrir ofan.
20240131_115552.jpg
20240131_115552.jpg (140.8 KiB) Skoðað 493 sinnum
Svo sullaði ég á þetta helling af fylliefni, sem ég get pússað niður á morgun, þegar það er orðið þurrt. Ljósin koma síðar.
20240131_121108.jpg
20240131_121108.jpg (142.91 KiB) Skoðað 493 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 39

Fylliefnið var orðið þurrt, svo ég gat pússað það niður og toppurinn á kambinum var kominn.
20240201_093429.jpg
20240201_093429.jpg (136.57 KiB) Skoðað 467 sinnum
Plötuskil búin til: Það eru mörg plötuskil á þessari flugvél og öll skara. Til að búa svoleiðis til, þá leggur maður niður límband þar sem skilin eiga að koma.
20240201_094726.jpg
20240201_094726.jpg (131.13 KiB) Skoðað 467 sinnum
Svo setur maður fylliefni upp að límbandinu. Þegar það hefur þornað getur maður pússað það niður að límbandinu.
20240201_104040.jpg
20240201_104040.jpg (129.36 KiB) Skoðað 467 sinnum
Og þegar maður er búinn að pússa fylliefnið niður og draga límbandið af, þá lítur þetta út eins og skarandi plötuskil.
20240201_104906.jpg
20240201_104906.jpg (126.98 KiB) Skoðað 467 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 40

Cessnur eru þekktar fyrir bárur á stýrum. Jerry Bates mælir með að maður kaupi báruplötur frá Park Flyer Plastics, sem framleiðir stórt úrval alls konar aukahluta á módel. Ég pantaði sjö plötur og fékk þær fljótt og örugglega. Hér er ég búinn að klippa plötur á hæðarstýrin. Keith Sparks hjá Park Flyer Plastics mælir með að plöturnar séu límdar niður með snertilími og ég fékk brúsa með svoleiðis í Víkurkaupum, byggingavöruverslun hér á Dalvík.
20240203_095120.jpg
20240203_095120.jpg (145.17 KiB) Skoðað 440 sinnum
Límið komið á og þarf að þorna í nokkrar mínútur. Það er sniðugt að maska af þar sem límið á ekki að koma.
20240203_102800.jpg
20240203_102800.jpg (139.44 KiB) Skoðað 440 sinnum
Og hér eru plastbárurnar komnar á hæðarstýrið og búið að snyrta þær að útlínum stýrsins.
20240203_103940.jpg
20240203_103940.jpg (147.56 KiB) Skoðað 440 sinnum
Þegar maður setur stýrin á stélflötinn, þá verður þetta verulega Cessnulegt.
20240203_112322.jpg
20240203_112322.jpg (136.13 KiB) Skoðað 440 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 41

Þar sem flapsarnir eru þarf að setja efni sem kallast G-10, sem er 1,5 mm þykk pressuð fíberplata. Ég á ekki slíkar plötur, svo ég þarf að spila af fingrum fram. Ég fékk 1 mm þykka balsaplötu hjá Tomma og límdi 0,3 mm ProSkin plötur báum megin á hana.
20240206_100813.jpg
20240206_100813.jpg (133 KiB) Skoðað 399 sinnum
Hér eru þessar tveggja tommu ræmur tilbúnar.
20240208_090425.jpg
20240208_090425.jpg (136.39 KiB) Skoðað 399 sinnum
Þetta kemur svo hér á vænginn. Ég get, hins vegar ekki sett þetta á fyrr en ég er búinn að setja flapsalamirnar í og þær eru ennþá í Ameríkunni.
20240208_091405.jpg
20240208_091405.jpg (131.61 KiB) Skoðað 399 sinnum
Ég ákvað að búa til vængstífurnar. SLEC lét fylgja með mjög fínar harðviðarstangir sem passa nokkurn vegin í stífurnar. Ég þurfti að setja 6 mm balsa aftan á harðviðinn til að fá rétta breidd.
20240208_091604.jpg
20240208_091604.jpg (133.11 KiB) Skoðað 399 sinnum
Hér eru útlínur stífanna á endanum og ég er búinn að hefla og pússa frambrúnina á annarri stífunni.
20240208_091821.jpg
20240208_091821.jpg (144.84 KiB) Skoðað 399 sinnum
Og hér eru þær tilbúnar til notkunar.
20240208_110055.jpg
20240208_110055.jpg (143.2 KiB) Skoðað 399 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 42

Ég setti glerfíber á stífurnar og sléttaði það niður með PeelPly efninu.
20240209_102027.jpg
20240209_102027.jpg (139.73 KiB) Skoðað 359 sinnum
Og eftir smá púss og grunn líta þær svona út. Nú þarf ég bara að pússa og slétta og þá get ég sett þær á þegar vængirnir eru tilbúnir.
20240212_113250.jpg
20240212_113250.jpg (140.4 KiB) Skoðað 359 sinnum
Ég hafði samband við Phil Clark hjá Fighter Aces og spurði hann hvor þeir væru með vélarhlíf í framleiðslu, en hann sagði svo ekki vera. Hann sagðist vera með teikningu af máta fyrir vélarhlífina og ég mætti fá hana ef eg vildi sjálfur reyna að búa hana til. Ég prentaði teikninguna út, klippti hana niður og límdi hlutana á 4 mm krossvið.
20240210_100902.jpg
20240210_100902.jpg (144.68 KiB) Skoðað 359 sinnum
Og hér eru hlutarnir, tilbúnir.
20240212_111934.jpg
20240212_111934.jpg (142.2 KiB) Skoðað 359 sinnum
Ég smokraði öllum pörtunum saman á líms til að sjá hvernig þeir detta saman. Vélarhlífin verður alveg sæmilega stór og ég get varla beðið eftir því að Árni komi norður á Dalvík til að máta hana.
20240212_112918.jpg
20240212_112918.jpg (143.06 KiB) Skoðað 359 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 43

Til að búa til formið fyrir vélarhlífina þarf að klæða grindina með 3 mm balsa. Ég setti heil borð þar sem ég gat og byrjaði svo að planka með 10 mm breiðum ræmum.
20240215_110638.jpg
20240215_110638.jpg (141.13 KiB) Skoðað 313 sinnum
Það er gríðarleg sveigja neðan undir hlífinni og ég þurfti að gegnbleyta balsaræmurnar til að fá þær til að leggjast og ekki brotna. Það tókst bara svona og svona.
20240216_093813.jpg
20240216_093813.jpg (144.64 KiB) Skoðað 313 sinnum
Á endanum tókst mér að planka allt formið.
20240216_110026.jpg
20240216_110026.jpg (142.66 KiB) Skoðað 313 sinnum
Og hérna er ég byrjaður að pússa það með grófum sandpappír. Ég ætla að gluða fullt af fylliefni á formið áður en ég pússa meira. Fremsti hlutinn á forminu á að vera frauðplast. Ég ætla að reyna að finna smá bút af bleiku eða bláu frauðplasti, sem eru ekki auðfundin hér á hjara veraldar.
20240216_110059.jpg
20240216_110059.jpg (138.87 KiB) Skoðað 313 sinnum
Og fyrst þetta gekk svona vel, þá pússaði ég niður grunninn á annarri stífunni og setti fylliefni í augljósa galla á hinni.
20240216_120237.jpg
20240216_120237.jpg (137.72 KiB) Skoðað 313 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 44

Fylliefni komið á formið. Þetta má þorna í nokkra daga og svo verður það pússað. Ég er ekki enn búinn að ná mér í almennilegt frauðplast fyrir nefið á forminu.
20240217_091900.jpg
20240217_091900.jpg (134.82 KiB) Skoðað 295 sinnum
Nýja hjólastellið tilbúið í skurð.
20240217_091843.jpg
20240217_091843.jpg (143.56 KiB) Skoðað 295 sinnum
Nýtt hjólastell út skorið. Nú þarf bara að renna á það með þúsund þjölum til að gera það sæmandi.
20240217_101133.jpg
20240217_101133.jpg (136.96 KiB) Skoðað 295 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 45

Ég beygði, boraði og fittaði hjólastellið á skrokkinn. Svo bjó ég til lok sem ég festi með M4 bolta, sem ég snittaði í stellið.
20240220_101043.jpg
20240220_101043.jpg (143.55 KiB) Skoðað 225 sinnum
Nefhjólastellið kom frá Ameríku (Robart) og ég festi það framaná skrokkinn.
20240221_091702.jpg
20240221_091702.jpg (146.02 KiB) Skoðað 225 sinnum
Nú stendur vélin í öll þrjú hjólin. Nefhjólið er þrjár tommur eins og Jerry Bates mælir með, en Ómar setti stærra hjól undir nefið hjá sér, svo ég þarf að ná í stærra dekk til að setja á það.
20240221_111331.jpg
20240221_111331.jpg (142.86 KiB) Skoðað 225 sinnum
Nefhjólastellið er tengt í servó inni í skrokknum. Ég bjó til bakka undir það og miðjaði rétt aftan við stellið. Því er stjórnað með tog-tog vírum.
20240221_111351.jpg
20240221_111351.jpg (145.41 KiB) Skoðað 225 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 46

Ekki mikið gert í dag -- og þó. Ég fékk þétt frauðplast hjá Tomma í gær og skar fjóra búta sem passa á nefið á vélarhlífinni.
20240222_100024.jpg
20240222_100024.jpg (139 KiB) Skoðað 203 sinnum
Svo notaði ég PU freyðilím til að líma þessa búta framan á formið. Ef maður úðar með vatni yfir límið, þá harðnar það fyrr en ella.
20240222_101506.jpg
20240222_101506.jpg (142.71 KiB) Skoðað 203 sinnum
Og þegar límið var farið að halda skar ég gróflega út útlitið á hlífinni. Ég renni á þetta með grófum sandpappír til að byrja með á morgun.
20240222_113547.jpg
20240222_113547.jpg (142.34 KiB) Skoðað 203 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara