Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 19

Ég byrjaði daginn á því að klára að planka ofan á skrokknum.
20231228_103414.jpg
20231228_103414.jpg (132.64 KiB) Skoðað 291 sinni
Svo dúllaði ég mér við að planka neðri hornin. Þessi eru aðeins krappari, þannig að ég skar 5 mm planka í staðinn fyrir þá 10 mm sem ég hef verið að nota hingað til. Þetta kemur hægt og örugglega og er ótrúlega skemmtilegt.
20231228_115514.jpg
20231228_115514.jpg (126.61 KiB) Skoðað 291 sinni
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 20

Ég er nánast búinn að planka skrokkinn, en til að gluggafestingarnar komist á þurfti ég að trimma smávegia af þeim.
20231230_093745.jpg
20231230_093745.jpg (142.31 KiB) Skoðað 266 sinnum
Ég ákvað að byrja að setja saman vængina. Þá uppgötvaði ég að rif W-2a voru ekki rétt skorin. Það hafði gleymst að gera ráð fyrir flöpsunum aftast. Ég strikaði eftir öðru rifi W-2 og sagaði í burtu það sem ekki á að vera.
20231230_103755.jpg
20231230_103755.jpg (145.73 KiB) Skoðað 266 sinnum
Næst þurfti að samlíma W-2a og W-2c, W-2a og W-2b.
20231230_105425.jpg
20231230_105425.jpg (146.59 KiB) Skoðað 266 sinnum
Krossviðar biti er frá W-1 til W-5. Þaðan eru svo vængvefir frá W-5 til W-11. Ég skar þessa vefi út úr 2,5 mm balsa og tók þá í rétta lengd. Þeir koma svo til með að staðsetja rifin rétt þegar ég lími vænginn saman.
20231230_110721.jpg
20231230_110721.jpg (139.73 KiB) Skoðað 266 sinnum
Ég prófaði að setja vænginn saman án þess að nota lím. Allt passaði eins og það átti að gera. Næst nota ég vinkla til að rifin fari rétt sman, því ég get ekki notað teikninguna vegna þess hversu vitlaus hún er.
20231230_113327.jpg
20231230_113327.jpg (133.95 KiB) Skoðað 266 sinnum
Hér eru festingarnar fyrir vængstífuna. Þessi stykki fara svo á milli rifja þegar ég lími vænginn.
20231230_115030.jpg
20231230_115030.jpg (127.73 KiB) Skoðað 266 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 21

Og þá er komið að því að líma vænginn saman. Vængrifin koma undir vængspelkuna, svo það þarf að setja þetta saman á lofti og leggja síðan niður á bitann.
20240101_121547.jpg
20240101_121547.jpg (144.26 KiB) Skoðað 254 sinnum
Hér eru öll rifin komin á og bitar, frambrún og styrkingar límdar í. Þetta tekur góðan tíma og eins gott að límið harðni ekki á meðan. Stálkubbar eru notaðir til að halda rifjunum niðri og réttskeið til að sjá til þess að aðal vængbitinn sé beinn og réttur.
20240101_125617.jpg
20240101_125617.jpg (142.95 KiB) Skoðað 254 sinnum
Nú er hægt að búa til hólfin fyrir servóin í vænginn, eitt fyrir flapsann og eitt fyrir hallastýrið.
20240101_134532.jpg
20240101_134532.jpg (131.55 KiB) Skoðað 254 sinnum
Og afturbrúnarklæðninguna fyrir hallastýrin. Nú má þetta allt þorna áður en vængklæðningin er búin til.
20240101_134541.jpg
20240101_134541.jpg (139.37 KiB) Skoðað 254 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 22

Ég bjó til fjögur servó lok með því að líma 1,5 mm krossvið á 1 mm balsa. Þetta gerir 2,5 mm, sem er sama þykkt og vængklæðningin. Ég notaði epoxý lím í þetta því að trélím inniheldur vatn og verpir svona viðarhluta.
20240102_102507.jpg
20240102_102507.jpg (135.15 KiB) Skoðað 245 sinnum
Ég setti venjuleg rafmagnsrör í vænginn fyrir servósnúrurnar. Leiðbeiningarnar mæla með raketturörum, en ég fæ svoleiðs ekki hér á landi.
Götin eru 17,4 mm og rörin 16 mm, svo að freyðilím gagnast til að halda þeim á sínum stað.
20240102_105357.jpg
20240102_105357.jpg (137.42 KiB) Skoðað 245 sinnum
Ég límdi saman skinnið undir vænginn úr þrem 2,5 mm balsaplötum og límdi þær svo á vænginn með freyðilími. Nú er um að gera að nota nægilegt farg.
20240102_120114.jpg
20240102_120114.jpg (147.58 KiB) Skoðað 245 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 23

Ég skrúfaði lokin á vænginn þar sem þau eiga að koma og skar svo klæðninguna undan þeim. Þannig passa þau eins og best er á kosið.
20240103_101230.jpg
20240103_101230.jpg (127.36 KiB) Skoðað 224 sinnum
Hér er hægra hallastýri í byggingu.
20240104_091206.jpg
20240104_091206.jpg (133.72 KiB) Skoðað 224 sinnum
0,4 mm krossviður er settur undir vænginn þar sem flapsinn á að koma. Límbandið er yfir smá sprungu í krossviðnum. Ég tek það þegar vængurinn er tilbúinn undir glerfíber. Nú þarf ég að bíða eftir því að Robart sendi mér flapsalamirnar. Þær koma í gegnum þessa krossviðarklæðningu,
20240104_111443.jpg
20240104_111443.jpg (138.54 KiB) Skoðað 224 sinnum
Og flapsarninr eru límdir saman. Ég get ekki klárað þá fyrr en ég fæ lamirnar, því þær eru settar innan í flapsana.
20240104_115433.jpg
20240104_115433.jpg (131.63 KiB) Skoðað 224 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 24

Stundum hamast maður við smíðar allan daginn, en nánast ekkert situr eftir. Hér er dæmi.
Ég setti vinstra hallastýrið saman og í þetta sinn mundi ég eftir að setja harðviðarkubb þar sem stýrishornið á að koma. Ég gleymdi þessu í hægra stýrinu og þurfti að skera það upp og bæta kubbnum við.
20240105_112154.jpg
20240105_112154.jpg (139.07 KiB) Skoðað 205 sinnum
Ég setti efra skinnið á hallastýrið og báða flapsana, svo að nú eru stýrin nánast tilbúin. Mig vantar af fá lamir frá Robart, en það gengur illa að fá þá til að fatta að ég var að panta frá þeim. Ég get ekki sett frambrúnina á flapsana fyrr en þær eru komnar í.
20240105_114642.jpg
20240105_114642.jpg (142.06 KiB) Skoðað 205 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 25

Ég raðaði vinstri vænggrindinni saman í morgun. Nú þarf þetta að þorna til morguns og þá get ég sett balsaklæðninguna á.
20240108_105040.jpg
20240108_105040.jpg (141.33 KiB) Skoðað 177 sinnum
Lamirnar á hallastýrum Cessna 172 eru ömmur furðulegar. Það eru þrjár í hvoru hallastýri og þær eru mjög langar, nánast píanólamir. Til að herma það á módelinu, þá keypti ég helling (30) af litlum Du-Bro lömum númer 118 og 0,8 mm stáltein. Ég klippti þolinmóðinn úr lömunum og þræddi þær upp á stálteininn, fjórar saman. Teinninn er beygður í 90° báðum megin við lamirnar og þá er komin langa lömin sem á að vera í vængnum.
20240108_113402.jpg
20240108_113402.jpg (143.86 KiB) Skoðað 177 sinnum
Þetta lítur svona út í hallastýrinu.
20240108_113902.jpg
20240108_113902.jpg (138.59 KiB) Skoðað 177 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU dagur 26

Neðra balsaskinnið límt á bakborðsvænginn.
20240109_114228.jpg
20240109_114228.jpg (143.86 KiB) Skoðað 154 sinnum
Á meðan límingin harðnar byrjaði ég að pússa skrokkinn og koma stélfletinum fyrir.
20240109_121805.jpg
20240109_121805.jpg (138.11 KiB) Skoðað 154 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 27

Báðir vængir tilbúnir undir tréverk, eins og sagt er. Það vantar að setja efra balsaskinn á þá báða, en ég get það ekki fyrr en ég fæ flapsalamirnar.
20240111_115820.jpg
20240111_115820.jpg (147 KiB) Skoðað 139 sinnum
Ég er kominn með servóin og eins gott að máta þau í. Þetta er annað hallastýris servóið og það er komið heilmikið gat fyrir arminn á lokið. Tengingar flapsanna verða innan í vængnum svo það þarf ekki gat þar.
20240111_111118.jpg
20240111_111118.jpg (136.79 KiB) Skoðað 139 sinnum
Festingar fyrir servóin komin á lokin.
20240111_115437.jpg
20240111_115437.jpg (146.38 KiB) Skoðað 139 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 28

Það er komið að því að gera skrokkinn sléttan. Ég nuddaði fylliefni (Partoline Ready Made Lightweight Filler) á alla staði á skrokknum sem þarf að slétta. Ég notaði gúmmíhanska og setti fylliefnið á með hendinni, ekki spaða. Þetta fylliefni minnir svakalega á gamla góða Rauða Djöfsa, meira að segja ilmar eins.
20240112_110323.jpg
20240112_110323.jpg (127.03 KiB) Skoðað 99 sinnum
Svo er bara að setja á sig öndunargrímuna og renna á allt með grófum sandpappír og pússikubbum. Öndvert við það sem flestir segja, þá finnst mér gaman að pússa.
20240115_094243.jpg
20240115_094243.jpg (140.08 KiB) Skoðað 99 sinnum
Eftir góða stund með öndunargrímuna er ljóst að maður á ekki að vera með sítt alskegg. Gríman rífur óþægilega í skegghárin og svo koma þau krumpuð og bæld undan henni. Skeggið verður að fara!
20240115_114718.jpg
20240115_114718.jpg (137.64 KiB) Skoðað 99 sinnum
Og hér er svo skrokkurinn pússaður að mestu.
20240115_114727.jpg
20240115_114727.jpg (140.09 KiB) Skoðað 99 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara