Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
gudjonh
Póstar: 851
Skráður: 27. Feb. 2008 09:07:06

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir gudjonh »

"Þetta fylliefni minnir svakalega á gamla góða Rauða Djöfsa, meira að segja ilmar eins."
Já einhvertíman var í gangi auglýsing. "Ilmurinn er indæll og bragðið eftir því"!
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

Eg þarf, semsagt, að smakka það.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 29

Ég opnaði skrokkinn að aftan svo stélið passar núna í. Bandið er til að mæla stöðu stélsins svo það sé rétt.
20240117_094311.jpg
20240117_094311.jpg (125.99 KiB) Skoðað 299 sinnum
Ég skrúfaði í servóin fyrir hæðarstýrin og hliðarstýrin. Móttakarinn verður nokkurn vegin þar sem hann er núna og rofarnir við hina hliðina.
20240117_110547.jpg
20240117_110547.jpg (142.22 KiB) Skoðað 299 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 30

Ég byrjaði daginn með tilraun: ég fékk frá vini mínum á Írlandi helling af efni sem kallast Peel Ply og virkar þannig að maður setur það á glerfíber og síðan, þegar resinið er orðið hart, þá rífur maður það af aftur og eftir situr sléttur glerfíber. Þetta er dótið sem maður notar: epoxý kvoða (resin), einnota pensill, glerfíber og Peel Ply.
20240118_094102.jpg
20240118_094102.jpg (128.09 KiB) Skoðað 292 sinnum
Maður byrjar á því að leggja glerfíberinn á módelið með kvoðunni. Mér skilst að maður geti sullað á eins miklu af resini og maður vill, en ég stóðst ekki mátið að draga úr því með pappaspjaldi.
20240118_095651.jpg
20240118_095651.jpg (140.74 KiB) Skoðað 292 sinnum
Svo er Peel Ply efnil lagt á og pappaspjald, spil eða krítarkort notað til að festa það í kvoðuna.
20240118_100438.jpg
20240118_100438.jpg (144.13 KiB) Skoðað 292 sinnum
Á meðan epoxýið herðnar (hægt, það er svo kalt á verkstæðinu) ákvað ég að líma 2,5 mm balsa á báðar hliðar hrygguggans.
20240118_104406.jpg
20240118_104406.jpg (133.88 KiB) Skoðað 292 sinnum
Ég setti líka hliðarstýrið á stélkambinn og mátaði hann á skrokkinn. Módelið minnkar ekki við þetta.
20240118_105849.jpg
20240118_105849.jpg (129.12 KiB) Skoðað 292 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 31

Ég reif Peel Ply efnið af stélfletinum. Ég bjóst við átökum, en þetta var mun auðveldara en ég gerði ráð fyrir.
20240119_091716.jpg
20240119_091716.jpg (134.97 KiB) Skoðað 276 sinnum
Áferðin á stélinu er afar góð, Það mótar fyrir Peel Ply efninu, en engir resin pollar neins staðar. Þetta verður flott. Ég er búinn að setja glerfíber og Peel Ply á efra skinnið og hlakka til að pússa þetta smá á morgun.
20240119_091801.jpg
20240119_091801.jpg (124.66 KiB) Skoðað 276 sinnum
Ég setti stýrishorn á servóin í vængnum. Hér eru flapsaservóin. Það kostaði smá heilaleikfimi að setja þau rétt svo þau ýti og togi bæði eins, en ekki sitt á hvað eins og hallastýrisservóin.
20240119_112304.jpg
20240119_112304.jpg (148.83 KiB) Skoðað 276 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 32

Ég hreinsaði fæturnar ofan af vængrifjunum. Er að vísu ekki búinn að fá flapsalamirnar, en geri þetta samt.
20240120_111351.jpg
20240120_111351.jpg (128.98 KiB) Skoðað 260 sinnum
Ég þurfti að setja glerfíber á frambrúnina á stélfletinum vegna þess að mér tókst ekki að láta glerdúkana skarast.
20240120_111819.jpg
20240120_111819.jpg (136.3 KiB) Skoðað 260 sinnum
Og svo setti ég glerfíber á aðra hliðina á stélkambinum, ásamt Peel Ply dúknum.
20240120_111826.jpg
20240120_111826.jpg (135.39 KiB) Skoðað 260 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 33

Ég er að setja glerfíber á hæðarstýrin og þeð er tvennt sem ég þarf að gera. Í fyrsta lagi, þá set ég seinna plast skinn á stýrin (kem að því seinna hvað þetta er) svo ég þarf ekki að setja þykkan glerfíber á þau. Ég get notað 25g/m2 glerfíber í stað 48 g/m2. Hitt er að hluti af Peel Ply dúknum er krumpaður vegna þess að hann var brotinn seman og settur í kassa. Ég prófaði að strauja þessar krumpur úr með straujárni stillt á lægsta hita. Það tókst.
20240122_095418.jpg
20240122_095418.jpg (141.57 KiB) Skoðað 240 sinnum
Hér er glerfíber og Peel Ply á hæðarstýrunum.
20240122_120137.jpg
20240122_120137.jpg (114.02 KiB) Skoðað 240 sinnum
Ég útbjó tvær plötur fyrir móttakara og rofa og setti í skrokkinn.
20240122_120121.jpg
20240122_120121.jpg (138.75 KiB) Skoðað 240 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 34

Glerfíbervinnan heldur áfram, en á sama ákvað ég að búa til og líma í stýrishornið á hliðarstýrið. Ég gróf úr pússi mínu smá plötu út G-10, eða pressaðan glerfíber, 1,5 mm að þykkt, sem notaður er í rafeindavörur, tölvur og svoleiðis. Á þetta teiknaði ég stýrishornið sem sýnt er á teikningunni.
20240124_103131.jpg
20240124_103131.jpg (123.08 KiB) Skoðað 222 sinnum
Ég notaði svo handfræsara frá Proxxon og skurðarblað til að skera út hornið. Götin voru boruð með 1,5 mm bor.
20240124_105618.jpg
20240124_105618.jpg (117.2 KiB) Skoðað 222 sinnum
Ég gerði rauf í hliðarstýrið með tifsöginni okkar og límdi svo hornið í með epoxý limi.
20240124_112439.jpg
20240124_112439.jpg (146.91 KiB) Skoðað 222 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 35

'Eg sprautaði grunni á stélflötinn í gær og núna pússaði ég hann nánast í burtu.
20240125_095317.jpg
20240125_095317.jpg (133.76 KiB) Skoðað 206 sinnum
Það voru nokkrar rispur sem ég þurfti að fylla í. Ég nota hér Motip Finishing Putty, en ég er að verða búinn með túpuna og þetta fæst ekki lengur. Af hverju þarf alltaf að hætta að selja huti sem mér líkar vel við?
20240125_102545.jpg
20240125_102545.jpg (126.08 KiB) Skoðað 206 sinnum
Og hér er ég búinn að pússa fylliefnið niður. Nú þarf bara þunna umferð af grunni og pússningu með P400 pappír og stélið er tilbúið
20240125_111407.jpg
20240125_111407.jpg (145.29 KiB) Skoðað 206 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3645
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU Dagur 36

Ég ákvað að búa til nýtt hjólastell vegna þess að það sem ég gerði eftir teikningunni er of stutt. Ég bjó til nýtt skapalón fyrir stellið eftir þeim málum sem gefin eru upp og þá lengist hjólastellið um rúman sentimeter. En fyrst þarf ég að losa það gamla. Ég skar balsann frá þar sem stellið er og gerði ráð fyrir 6 mm veggjum bæði fyrir framan og aftan.
20240127_095715.jpg
20240127_095715.jpg (144.07 KiB) Skoðað 185 sinnum
Ég útbjó 6 mm veggi framan og aftan við stellið og límdi þá í.
20240127_112801.jpg
20240127_112801.jpg (137.4 KiB) Skoðað 185 sinnum
Ég pússaði veggina niður og setti svo kubb á milli, sem ég aðlaga að skrokknum þegar nýja stellið er komið.
20240127_120230.jpg
20240127_120230.jpg (149.24 KiB) Skoðað 185 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara