Bleikisteinsháls - 21.apríl 2024

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11455
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Bleikisteinsháls - 21.apríl 2024

Póstur eftir Sverrir »

Þrátt fyrir að vera nánast í hávestan í morgun þá var einhvern smá sunnanþefur af vindinum við Hamranesið svo ég ákvað að skella mér á svæðið með svifflugu og kanna hvort það væri eitthvað hang í kortunum. Stuttu eftir að ég mætti á svæðið þá kom Guðjón í sömu erindagjörðum og þrátt fyrir að vindurinn væri frekar vestanstæður þá var smá sunnanátt í honum og eins og oft vill vera þá var hann betri upp á brekkubrún.

Þegar upp var komið kom í ljós að vindurinn var í kringum 10 m/s og blés ca. 60° á brekkubrúnina þannig að það var ekki annað í stöðunni en að ballesta vel og henda vélinni upp í vindinn. Þokkalegasta hang en frekar rysjótt og ekki skemmtilegustu aðstæðurnar en sæmilega hlýtt og sól. Ágætis viðring svona í byrjun tímabils og fyrsta hangflug ársins hér heima hjá mér.



IMG_9386.jpg
IMG_9386.jpg (266.09 KiB) Skoðað 165 sinnum

IMG_9391.jpg
IMG_9391.jpg (22.92 KiB) Skoðað 165 sinnum

IMG_9392.jpg
IMG_9392.jpg (226.93 KiB) Skoðað 165 sinnum

IMG_9394.jpg
IMG_9394.jpg (445.35 KiB) Skoðað 165 sinnum

IMG_9395.jpg
IMG_9395.jpg (321.32 KiB) Skoðað 165 sinnum
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
gudjonh
Póstar: 852
Skráður: 27. Feb. 2008 09:07:06

Re: Bleikisteinsháls - 21.apríl 2024

Póstur eftir gudjonh »

Já, skemmtilegur morgunn þrátt fyrir að það stæði "skakt" á brekkuna!
Viðhengi
20240421_105535_compress14.jpg
20240421_105535_compress14.jpg (443.6 KiB) Skoðað 159 sinnum
20240421_103612_compress90.jpg
20240421_103612_compress90.jpg (463.43 KiB) Skoðað 159 sinnum
20240421_101347_compress7.jpg
20240421_101347_compress7.jpg (391.26 KiB) Skoðað 159 sinnum
20240421_101630_compress19.jpg
20240421_101630_compress19.jpg (458.69 KiB) Skoðað 159 sinnum
20240421_101852_compress74.jpg
20240421_101852_compress74.jpg (447.28 KiB) Skoðað 159 sinnum
Svara