Síða 1 af 1

Skáldalækur - 25. maí 2024

Póstað: 25. Maí. 2024 12:48:04
eftir Gaui
Við ætluðum að fljúga á Árskógi, en vindáttin reyndist ekki vera hagstæð, svo við fórum á Skáldalæk. Við rétt komumst niður á brautina fyrir snjóskafli sem enn er að reyna að bráðna, en þegar þangað var komið var hægt að fljúga. Eins og sést á myndunum er grasið vel kalið á brautinni.

Gaui flaug Mighty Barnstormer. Mótorinn (OS 96) virtist betri í skapinu en síðastliðið sumar og gekk eins og klukka.
IMG_8413.JPG
IMG_8413.JPG (155 KiB) Skoðað 187 sinnum
IMG_8404.JPG
IMG_8404.JPG (141.08 KiB) Skoðað 187 sinnum
Elvar var með Stinger og hann er farinn að ná góðum tökum á honum.
IMG_8414.JPG
IMG_8414.JPG (146.84 KiB) Skoðað 187 sinnum
IMG_8451.JPG
IMG_8451.JPG (151.63 KiB) Skoðað 187 sinnum
8-)

Re: Skáldalækur - 25. maí 2024

Póstað: 26. Maí. 2024 17:56:28
eftir Sverrir
Ekki að spyrja að veðurblíðunni! 8-)