Síða 1 af 1

Arnarvöllur - 5.október 2024 - Haustflugkoma FMS

Póstað: 4. Okt. 2024 10:00:12
eftir Sverrir
Fínasta mæting á haustflugkomuna sem var haldin í þessari líka bongóblíðu, fyrstu menn voru mættir rúmlega tíu um morgunin og þeir síðustu voru að skríða heim um fjögur leytið. Að sjálfsögðu var mikið flogið og mikið gaman þó ein vélin hafi tapað í baráttunni við Móður Jörð um sama loftrýmið, eða réttara sagt landrýmið, þá létu menn það ekki slá sig út af laginu og var bara gefið heldur meira í.

Frábær endir á aðal tímabilinu þó skemmtilegra hefði verið að fá marga af þessum dögum síðustu vikna yfir hásumarið.

Byrjar vel!
IMG_2495.jpg
IMG_2495.jpg (211.14 KiB) Skoðað 433 sinnum

Seifur á fullri ferð hjá Gústa.
IMG_2503.jpg
IMG_2503.jpg (225.52 KiB) Skoðað 433 sinnum

Stóra gul klikkar aldrei!
IMG_2505.jpg
IMG_2505.jpg (245.05 KiB) Skoðað 433 sinnum

Allar sellur mældust eftir ákomuna og rafhlaðan var „heil“. :shock:
IMG_2499.jpg
IMG_2499.jpg (164.58 KiB) Skoðað 433 sinnum

Re: Arnarvöllur - 5.október 2024 - Haustflugkoma FMS

Póstað: 5. Okt. 2024 23:04:16
eftir Guðni
Það var ekkert annað í boði en að mæta á Haustflugkomuna í dag....og mætti ég með F-15..og tók 2 flug...en eitthvað þurfti hún að fara afsíðis í fyrstu lendingu..ekkert alvarlegt samt...Sverrir tók fínar myndir af henni og þakka ég honum fyrir það...annars var bara flogið stanslaust fram á dag..
Takk fyrir daginn...

Re: Arnarvöllur - 5.október 2024 - Haustflugkoma FMS

Póstað: 5. Okt. 2024 23:50:20
eftir maggikri
.

Re: Arnarvöllur - 5.október 2024 - Haustflugkoma FMS

Póstað: 6. Okt. 2024 20:34:22
eftir Sverrir
Takk fyrir daginn, nokkrar myndir komnar í fyrsta póstinn.
Guðni skrifaði: 5. Okt. 2024 23:04:16 Það var ekkert annað í boði en að mæta á Haustflugkomuna í dag....og mætti ég með F-15..og tók 2 flug...Sverrir tók fínar myndir af henni og þakka ég honum fyrir það.
Takk sömuleiðis, sjálfsagt mál að taka nokkur skot og ekki er það verra að hafa góðan flugmann á pinnunum sem kann að sýna flugmódelið! 8-)