Síða 1 af 1

Módelsýning IPMS Iceland 2024

Póstað: 21. Okt. 2024 22:35:24
eftir Sverrir
IPMS Iceland samtökin voru vakin úr dvala fyrir nokkrum árum síðan og hafa síðan þá haft árlega sýningu þar sem félagsmenn sýna eitthvað af því sem þeir hafa verið að dunda við. Sýningin í ár var haldin sunnudaginn 20. október í húsnæði Kiwanisklúbbsins Eldeyjar. Það er óhætt að segja að þarna hafi mátt sjá mörg stórglæsileg módel af öllum stærðum og gerðum!