Sælir félagar,
Í tilefni þess að strangari reglur um dróna fjarflug frá EASA og Íslensk stjórnvöld samþykku í haust, þá fékk ég skilaboð frá Samgöngustofu að skrá mig fyrir 5.jan. í A2 drónapróf sem verður haldið hjá þeim dagana 14. til 16 jan. 2025
Nú ég bókaði mig í það próf og tók það gær milli 10:30 og 11:30. Var áður búinn að taka A1 og A3 prófið á netinu sem er nóg fyrir okkur módel flugmenn að taka, til að vera með trygginga málin í lagi. A2 drónaprófið er meira fyrir atvinnu drónaflug sem fjarflugmaður fyrir myndatöku og kvikmyndatöku.
þannig að ég var meira og minna núna í byrjun þessa árs að lesa mig gegnum þessar nýju reglur um drónaflug.
Prófið var tekið á tölvu undir eftirliti hjá Samgöngustofun, ég var alveg undrandi hvað margar voru með mér að þreyta prófið, bæði útlendingar og Íslendingar, nemendur teknir inn í hollum inn í prófstofuna 30 í einu tvisvar á dag í þrjá daga.
En mér skilst að eftirsóttustu hermenn í nútímahernaði séu vel þjálfaðir drónafjarflugmenn, ætli ég fái ekki símtal frá NATO á næstu dögum, nei smá grín, en ég var örugglega aldursforsetann þarna að þreyta prófið.
Ég stóðst prófið og er kominn með löglegt fjarflugmannskírteini.
Fjarflugmanns skírteini 15. Janúar 2025
Fjarflugmanns skírteini 15. Janúar 2025
- Viðhengi
-
- 1. Flugskýreini.jpeg (233.61 KiB) Skoðað 223 sinnum
-
- 4. Prófið.jpeg (302.86 KiB) Skoðað 223 sinnum
-
- 3. Prófstofa SST.jpeg (273.95 KiB) Skoðað 223 sinnum
-
- 2. Flugvottorð .jpeg (31.79 KiB) Skoðað 219 sinnum
Síðast breytt af Böðvar þann 16. Jan. 2025 23:18:49, breytt 3 sinnum.
Re: Fjarflugmanns skírteini
Til hamingju með áfangann! Gaman að sjá hvernig þetta lítur út.
Icelandic Volcano Yeti