Smíðað í Goðanesi

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Árni H
Póstar: 1595
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Smíðað í Goðanesi

Póstur eftir Árni H »

Það bar við nokkru fyrir jól að boð bárust frá Slippnum að nú væri farið að hitna verulega undir FMFA í suðurkjallaranum, hvar félagið hefur nú verið í ein 12 - 14 ár og fyrsta janúar yrði félagið að vera búið að losa húsnæðið. Því var nú ekki verulega vel tekið og ekki laust við að sveðjur væru brýndar í bakherbergjum, gamlir rifflar teknir niður af veggjum og Mývetningurinn í hópnum hafði á orði að einhverstaðar væri hægt að komast í dýnamítafganga, enda ekkert vandamál svo stórt að ekki væri hægt að leysa það með svo sem ögn af fyrrgreindu sprengiefni. Sem betur fer róuðust félagar FMFA fljótlega enda flestir farnir að reskjast og mesti hamfaramóðurinn runninn af þeim.

Þá byrjaði leitin að hentugu húsnæði. Það verður að segjast að leitin að gistiherbergi í Betlehem fyrir rúmum 2000 árum hefur sennilega verið öllu auðveldari en leitin að hentugu húsnæði fyrir flugmódelfélagið. Þegar öll sund virtust lokuð og örvilnan skammt undan birtist Tomma frelsandi engill í líki Dunda, sem er verktaki hér í bæ. Hann var með laust iðnaðarbil og til að gera langa sögu stutta náðust samningar við hann um leigu.

Var þá hafist handa við flutninga. Eins og í öllum flutningum kom í ljós gríðarlegt magn af dóti sem auðvitað átti að vera löngu búið að fleygja á haugana þannig að nokkrir sendibílfarmar fóru beint í ruslið. Ef Tomma hefði ekki notið við á stórum sendibíl hefum við sennilega verið í mjööööög djúpum skít. Svo var hafist handa við að koma fyrir borðum, verkfærum, flugherminum, kaffiaðstöðunni og rafmagn lagt í borð og loft. Nú er loksins að komast mynd á sköpunarverkið og hægt að fara að huga að smíðum og viðhaldi og síðast en ekki síst - að drekka kaffi og segja sögur!

Meðfylgjandi myndir byrja í Slippnum og færast svo yfir í Goðanes, þ.e.a.s. ef þær hafa raðast rétt upp. Þær ná engan veginn að sýna umfang þess verkefnis að flytja heilt félag um set en hvað um það - nú er alltaf heitt á könnunni í Goðanesi!
Viðhengi
20241212_204605.jpeg
20241212_204605.jpeg (405.14 KiB) Skoðað 12 sinnum
20241214_135643.jpeg
20241214_135643.jpeg (374.3 KiB) Skoðað 12 sinnum
20241214_144744.jpeg
20241214_144744.jpeg (268.43 KiB) Skoðað 12 sinnum
20241214_151801.jpeg
20241214_151801.jpeg (392.05 KiB) Skoðað 12 sinnum
20241217_143253.jpeg
20241217_143253.jpeg (324.46 KiB) Skoðað 12 sinnum
20241217_143711.jpeg
20241217_143711.jpeg (354.71 KiB) Skoðað 12 sinnum
20241217_144205.jpeg
20241217_144205.jpeg (291.14 KiB) Skoðað 12 sinnum
20241217_150159.jpeg
20241217_150159.jpeg (405.23 KiB) Skoðað 12 sinnum
20241221_142411.jpeg
20241221_142411.jpeg (239.97 KiB) Skoðað 12 sinnum
20241230_164548.jpeg
20241230_164548.jpeg (197.75 KiB) Skoðað 12 sinnum
20250109_200606.jpeg
20250109_200606.jpeg (326.17 KiB) Skoðað 12 sinnum
20250109_201154.jpeg
20250109_201154.jpeg (368.94 KiB) Skoðað 12 sinnum
20250109_203050.jpeg
20250109_203050.jpeg (319.32 KiB) Skoðað 12 sinnum
20250109_211025.jpeg
20250109_211025.jpeg (328.35 KiB) Skoðað 12 sinnum
20250129_140644.jpeg
20250129_140644.jpeg (323.93 KiB) Skoðað 12 sinnum
20250129_143126.jpeg
20250129_143126.jpeg (356.7 KiB) Skoðað 12 sinnum
20250130_200359.jpeg
20250130_200359.jpeg (356.61 KiB) Skoðað 12 sinnum
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11609
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Smíðað í Goðanesi

Póstur eftir Sverrir »

Til hamingju með nýju aðstöðuna, leit þarna við um daginn og get staðfest að þetta er allt saman mjög kósý hjá drengjunum!
Icelandic Volcano Yeti
Svara