Þorlákshöfn - 23.apríl 2025
Póstað: 23. Apr. 2025 18:19:57
Leiðangur okkar Guðjóns í Kambana að kanna aðstæður fyrir Iceland Open F3F 2025 og þar sem lofað hafði verið um 5-6 m/s beint á brekku voru menn þokkalega bjartsýnir á flug. Þeim hugsunum var þó snarlega slaufað þegar við mættum á svæðið og þar beið okkar sunnan vindur í kringum 4-6 m/s þannig að ekki einu sinni rafmagnsrellur gátu hangið að sögn Guðjóns!
Eftir að hafa litið á næstu veðurstöðvar kom í ljós að það var nánast SA á Þorlákshöfn sem er beint á bakkann þar svo þangað var skundað í snarheitum, enda ekki mikið að hafa í Kömbunum eins og áður hefur komið fram. Þegar þangað var komið var vindmælirinn dreginn fram og viti menn, rúmlega 10 m/s beint í fangið þannig að það var ekki eftir neinu að bíða og vélin dregin fram.
Nýviðgerðum Freestyler eftir svaðilfarir við Feggeklit í Danmörku, en þar er talið að Hamlet hafi myrt hin illa stjúpa sinn, var skellt saman og hann gerður klár í prufuflug. Fer svo sem ekki miklum sögum af því öðrum en þeim að hann virkaði sem áður fyrr og skemmti sér vel í hreina vindinum frá Suðurskautinu sem berst þarna upp að ströndum vorum.
Það er svo taka tvö eftir hádegi á morgun en þá er spáð um 7-8 m/s í Kömbunum, verður áhugavert að sjá hvort það standist!
Áhugasamir geta svo skemmt sér við að dáðst að stærðinni á Mykinesinu þar sem það liggur við festar í höfninni.