Tvísýnt var með brekku fyrir daginn þar sem spáð var talsverðu hægviðri á milli brekkna en eftir smá rekistefnu á bílastæðinu var ákveðið að halda aftur til Levisham og reyna við hana. Ekki gerðist mikið fyrir hádegi nema við fengum óvænta flugsýningu þegar tvær smárellur áttu leið hjá en þess á milli var mikið spjallað og léttari vélum flogið. Þar sem vindurinn var ekki mikið að sýna sig þá tók við bið fram til hálf tólf þegar mótsstjórn ákvað að láta reyna á þetta og hóf tuttugustu umferðina. Óhætt er að segja að hún hafi verið skrautleg og áttu uppstreymisbólur talsverðan þátt í bestu tímum dagsins en það munaði 66 sekúndum á besta og versta tíma þeirrar umferðar. Sú tuttugasta og fyrsta, og jafnfram síðasta var örlítið skárri en einungis munaði 52 sekúndum á besta og versta tíma þeirrar umferðar.
Engu að síður þá var 21 umferð í höfn eftir daginn og þar með var North of England F3F Open 2025 lokið.
Hraðasta tíma dagsins átti Arjen van Vark á 37.31s í tuttugustu umferð.
Heilt yfir þá vorum við bara nokkuð sáttir við árangurinn.
Sverrir, sjöunda sæti í tuttugustu umferð, besti tími 44.11s í nítjándu umferð.
Erlingur, fjórtánda sæti í sautjándu umferð, besti tími 46.90 í sautjándu umferð.
Guðjón, ellefta sæti í tuttugustu umferð, besti tími 53.00 í sjöttu umferð.
Áhugasamir geta séð nánari sundurliðun á F3XVault.
Levisham - 29.júní 2025
Levisham - 29.júní 2025
- Viðhengi
-
- IMG_6730.jpg (307.82 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6735.jpg (64.78 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6739.jpg (295.56 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6743.jpg (119.06 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6745.jpg (30.94 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6746.jpg (53.61 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6752.jpg (477.08 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6754.jpg (421.57 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6755.jpg (298.96 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6756.jpg (365.9 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6759.jpg (36.79 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6760.jpg (34.02 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6769.jpg (187.42 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6773.jpg (149.56 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6778.jpg (473.09 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6780.jpg (171.44 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6782.jpg (198.72 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6788.jpg (180.24 KiB) Skoðað 31 sinni
-
- IMG_6790.jpg (165.55 KiB) Skoðað 31 sinni
Icelandic Volcano Yeti