Síða 1 af 1
Re: Pálsvöllur í dag
Póstað: 10. Ágú. 2008 16:06:47
eftir DeletedUser
Re: Pálsvöllur í dag
Póstað: 10. Ágú. 2008 22:07:22
eftir Eiður
hæhæ hvar er pálsvöllur ?????
Re: Pálsvöllur í dag
Póstað: 11. Ágú. 2008 07:47:20
eftir DeletedUser
Við Sandskeið vestan megin.
Re: Pálsvöllur í dag
Póstað: 11. Ágú. 2008 11:13:02
eftir benedikt
við sandskeið, hægra megin ;P
Re: Pálsvöllur í dag
Póstað: 11. Ágú. 2008 11:25:44
eftir Agust
Ekið er af Suðurlandsvegi inn á Bláfjallaveg. Vestan eða hægra megin Bláfjallavegar er stór áberandi klettur og hefur þar verið komið fyrir listaverki sem er eins konar viti (hálfviti). Mig minnir að vegarslóðinn liggi frá Bláfjallaveginum að þessum kletti og síðan suður (upp) fyrir hann að Pálsvelli.
Á gömlu vefsíðu Þyts sem varðveitt er hér
http://brunnur.rt.is/ahb/thytur-old/thytur.html stendur eftirfarandi í kaflanum Spurningar og svör
http://brunnur.rt.is/ahb/thytur-old/thyt-faq.html
"
2) Pálsvöllur: Þetta er grasvöllur skammt frá Sandskeiði. Hann hefur aðallega verið notaður fyrir svifflug. Þar er öllum félögum í Þyt frjálst að vera án gjalds. Leiðarvísir: Ekið er í átt til Sandskeiðs og inn á Bláfjallaveg. Á móts við hliðið inn á Sandskeið er beygt af Bláfjallavegi til hægri og ekið eftir vegarslóða um 1 km. (ónákvæmt). Vegurinn liggur fyrst hornrétt á Bláfjallaveginn, en sveigir síðan í átt að skíðasvæðinu. Um það bil miðja vegu er komið að stórum hraunkletti og er haldið áfram eftir veginum um 500 m. þar til komið er að flugvellinum"
Re: Pálsvöllur í dag
Póstað: 11. Ágú. 2008 17:02:05
eftir Eiður
hentar þessi völlur stórum jafnt sem litlum modelum
Re: Pálsvöllur í dag
Póstað: 12. Ágú. 2008 13:27:35
eftir DeletedUser
Eiður já svæðið hentar jafnt stórum sem litlum modelum enda bara opin víðátta og engar hindranir í aðflugi. Í mínum huga er það undarlegasti gjörningur í sögu sportsins þegar Þytsmenn yfirgáfu Pálsvöll, eftir að hafa eytt tíma og fyrirhöfn í að hreinsa grjót af svæðinu og sá grasfræi, fyrir verri svæði eins og Leirdal Kóp og Geirsnef Rvk sem bæði voru of nálægt byggð enda kvartað undan hávaða frá modelunum í Leirdal og Geirsnefið fór fljótt í hundana. Sjálfum fannst mér skemmtilegast að fara með svifflugurnar á Pálsvöllinn og notaða þá teygju til að koma þeim á loft. Og þó Hamranesflugvöllur hefði verið kominn í gagnið þá vorum við nokkrir félagarnir sem héldum áfram að fljúga mótorvélum á Pálsvellinum, kipptum bara með okkur sláttuvél og þá var komin braut á nokkrum mínútum. En auðvitað lítur völlurinn ekki vel út í dag en það myndi hjálpa mikið ef valtað væri að vori meðan jarðvegurinn er enn blautur. Ef þú hefur áhuga á að koma og skoða svæðið þá getum við hist þar.
Re: Pálsvöllur í dag
Póstað: 12. Ágú. 2008 19:24:42
eftir Eiður
já það er mjög spennandi

ég væri til í að prufa völlinn í það minnsta.
Re: Pálsvöllur í dag
Póstað: 13. Ágú. 2008 11:45:30
eftir DeletedUser
Frábært
