Síða 1 af 5
Re: Composite-arf Yak 55SP samsettning !
Póstað: 5. Jan. 2009 19:05:41
eftir Fridrik
Fékk í jólagjöf frá mér þessa fínu Composite -arf Yak 55SP 2.1 m vænghaf,
Hún verður með DA-50 mótor, JR DS8411 á elevator, DS8511 á rudder og aileron verða með DS8711
mun reyna að posta hér samsettninguna og sértaklega reyna klára gripinn í þetta skiptið, en ég er staddur í Hollandi þannig að ég ætti að hafa tíma,
kv
Friðrik
Re: Composite-arf Yak 55SP samsettning !
Póstað: 5. Jan. 2009 19:32:25
eftir Sverrir
Glæsilegt, eins gott fyrir þig að vera duglegur í smíðinni annars verðurðu að gefa mér vélina ef þú skilar þér heim með ósmíðaða vél
Re: Composite-arf Yak 55SP samsettning !
Póstað: 5. Jan. 2009 22:13:31
eftir Fridrik
Jæja búin að gera smá í kvöld.
Hjólastellið komið undir og stélhjólið sem er frá graupner.
byrjaði að útbúa festingu fyrir canopy ramman.
komst ekki lengra í kvöld en ég er í frí til 10 jan þannig að ég ætti að ná meiru næstu daga.
kv
Friðrik
Re: Composite-arf Yak 55SP samsettning !
Póstað: 6. Jan. 2009 00:23:54
eftir maggikri
Flottar jólagjafir sem menn fá í útlöndum!
kv
MK
Re: Composite-arf Yak 55SP samsettning !
Póstað: 6. Jan. 2009 15:03:40
eftir Fridrik
Ég á svo góða konu
kv
Friðrik
Re: Composite-arf Yak 55SP samsettning !
Póstað: 6. Jan. 2009 15:35:02
eftir maggikri
[quote=Fridrik]Ég á svo góða konu
kv
Friðrik[/quote]
Heldur betur!
kv
MK
Re: Composite-arf Yak 55SP samsettning !
Póstað: 6. Jan. 2009 21:34:43
eftir Ágúst Borgþórsson
Sverrir!! nú verður þú að ná þér í eina svona konu svo þú getir farið að æfa 3D af fullum krafti =D
Re: Composite-arf Yak 55SP samsettning !
Póstað: 6. Jan. 2009 22:40:35
eftir Sverrir
Hvers konar 3D :rolleyes: Ég á nú einhverjar vélar sem geta stundað loftfimleika
Re: Composite-arf Yak 55SP samsettning !
Póstað: 8. Jan. 2009 00:02:39
eftir Björn G Leifsson
[quote=Fridrik]Ég á svo góða konu
kv
Friðrik[/quote]
Ég líka... en hvernig fórstu að því að lauma þessu að henni???
Er það einhver töfradrykkur eða...?
Það fyrsta sem mér datt í hug var að skrifa var... "er hægt að fá hana lánaða?" en það væri nú frekar ósmekklegt og ég held ekki að mín elskulega mundi hleypa mér inn í svefnherbergið aftur ef ég léti svoleiðis út úr mér...
Ég segi nú bara: "he-i flott þessi!" eh... vélin meina ég.
og Friðrik... hvernig eru aðstæður þarna hjá þér... ertu með völl í nágrenninu? ertu etthvað að komast að fljúga???? og svo framvegis... alltaf gaman að fá smá frásögn.
Re: Composite-arf Yak 55SP samsettning !
Póstað: 8. Jan. 2009 13:48:37
eftir Fridrik
[quote=Björn G Leifsson][quote=Fridrik]Ég á svo góða konu
kv
Friðrik[/quote]
Ég líka... en hvernig fórstu að því að lauma þessu að henni???
Er það einhver töfradrykkur eða...?
Það fyrsta sem mér datt í hug var að skrifa var... "er hægt að fá hana lánaða?" en það væri nú frekar ósmekklegt og ég held ekki að mín elskulega mundi hleypa mér inn í svefnherbergið aftur ef ég léti svoleiðis út úr mér...
Ég segi nú bara: "he-i flott þessi!" eh... vélin meina ég.
og Friðrik... hvernig eru aðstæður þarna hjá þér... ertu með völl í nágrenninu? ertu etthvað að komast að fljúga???? og svo framvegis... alltaf gaman að fá smá frásögn.[/quote]
Sæll Björn,
Samningstækni 103 það er málið
Hér eru 2 klúbbar sem eru nálægt hjá mér, annar er mjög lítill en hinn er fínn, þeir eru í 20km fjarlægð frá þar sem ég bý rétt suður af Utrecht.
Hef ekki farið enn að fljúga en er með eina rafmagnsvél sem ég tók með mér út, fékk hjá Þresti heitir Vanquish, síðan ætla ég að klára Yak fyrir sumarið, ég mun pósta myndum þegar ég er búin að taka flug hérna í Hollandi.
En ég mun vera hérna í Hollandi í 2 ár á vegum vinnunar.
Hér má sjá link á addessuna á klúbbnum.
http://www.modelvliegclubutrecht.nl/
kv
Friðrik