Síða 1 af 1

Re: Skiptiskrúfa á fjórgengishreyfil?

Póstað: 29. Okt. 2005 19:33:29
eftir Björn G Leifsson
Gegnum tíðina hafa eflaust fleiri en einn "sérfræðingur" lýst því yfir að skiptiskrúfur séu ekki raunhæfar í módelflugi.

Peter Ustinov, sá dásamlegi grínleikari og lífsgleðimaður sagði einu sinni:
"When the world blows itself up, the last voice heard will be that of an expert saying: 'It can't be done!' "

Þessa dagana er Íri nokkur að hanna og smíða skiptiskrúfu á Saito 100 fjórgengismótor.
Hér er umræðuþráður um verkefnið á Flying Cirkus. Fullt af myndum og vídeó af fyrstu tilraunakeyrslunni.

Við höfum nýlega séð skiptiskrúfur notaðar í "frauð_flugi" með hrikalega skemmtilegum afleiðingum. Spennandi að sjá hverju Írinn kemur til leiðar.

Mynd

Re: Skiptiskrúfa á fjórgengishreyfil?

Póstað: 29. Okt. 2005 22:49:09
eftir Sverrir
Brjálaðir þessir Írar :)

Reyndar þurfum við ekki að leita langt yfir skammt þó okkar maður sé ekki búinn að fljúga sinni vél með skiptiskrúfu.

http://frettavefur.net/myndasafn/8/

Re: Skiptiskrúfa á fjórgengishreyfil?

Póstað: 29. Okt. 2005 23:06:39
eftir Björn G Leifsson
:cool: Hvílík vél!

Er skrúfan heimasmíði?

Re: Skiptiskrúfa á fjórgengishreyfil?

Póstað: 30. Okt. 2005 00:06:31
eftir Sverrir
Jamm.

Re: Skiptiskrúfa á fjórgengishreyfil?

Póstað: 1. Nóv. 2005 09:58:18
eftir benedikt
þetta lítur út eins og blade-grip af þyrlu en hub-inn er greinilega heimasmíðaður.

Re: Skiptiskrúfa á fjórgengishreyfil?

Póstað: 1. Nóv. 2005 11:04:01
eftir Ingþór
ef einhver fylgist með upprunalega póstinum regglulega þá endilega látið okkur hina vita þegar testflugs videoið kemur inn, leit vel út í prufununum.

gæti verið sniðugt að setja revmax eða govenor á græjuna svo hún fari ekki á yfirsnúning þegar proppurinn er á 0° skurð, þá væri þetta alvöru constant speed, variable pitch drifkerfi

Re: Skiptiskrúfa á fjórgengishreyfil?

Póstað: 3. Nóv. 2005 11:57:03
eftir Björn G Leifsson
Reyndar ekki Variable pitch "on the fly" en variable samt og meira að segja skalalegt. Þetta verða kannski skrúfurnar á Liberatornum sem ég ætla (einhvern tíma :)) að byggja.

VarioProp - Ramos

Mynd Mynd