Mér datt nú í hug gamla flugstöðvar-rafstöðin þegar ég sá að minn kæri vinnustaður er að selja fullt af vararafstöðvum. Hér væri kannski hægt að fá fína stöð fyrir slikk. En svo þegar nánar er að gáð þá er þetta meira og minna ógangfært og úr se´r gengið... ojæja.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong" H.L. Mencken
Ég er með eina tveggja sílindra 6KW Lister ljósavél sem ég er alveg tilbúinn að selja fyrir slikk. Það fylgir henni töflukassi. Það eina sem vantar er að drösla henni suður og setja á hana dísilolíu. Hún er vel gangfær og framleiðir rafmagn.
Ég get farið út í skúr á morgun og tekið mynd af vélinni ef einhver hefur áhuga.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Myndin hans Björns minnir mig á það þegar við Kristján Antonsson fórum á Kleppsspítalann. Við vorum reyndar með fullu viti í það skiptið.
Erindið var að skoða forláta ljósvél sem þar var til sölu. Okkur þótti hún óþarflega stór fyrir Hamranes, og varð endirinn sá að keypt var Lister rafstöð á sveitabæ í Kjósinni.
Vona að enginn sé að misskilja mig... ég var ekki að leggja til að Þytur færi í svona fjárfestingu Sá bara tenginguna við umræðuna sem Ágúst minnti á hér fyrir ofan...
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong" H.L. Mencken