Síða 1 af 2

Re: Flugmódel í kvöldfréttum RÚV í gær

Póstað: 15. Júl. 2009 10:41:11
eftir Sverrir

Re: Flugmódel í kvöldfréttum RÚV í gær

Póstað: 15. Júl. 2009 14:35:52
eftir Agust
Ég bjóst við eihverjum hátækni fjarstýrðum flugvélum og beið spenntur... :)

Re: Flugmódel í kvöldfréttum RÚV í gær

Póstað: 15. Júl. 2009 14:53:27
eftir Gaui
Ég fékk það á tilfinninguna að ekki væri hægt að mæla mjög mikinn vind með þessum frauðplastkubbum -- og hann kallaði þetta LEIKFÖNG ! Þvílík móðgun !

Re: Flugmódel í kvöldfréttum RÚV í gær

Póstað: 15. Júl. 2009 17:49:17
eftir JVP
Sem gamall flugmódelmaður hef ég smám saman gert mér grein fyrir eftirfarandi staðreyndum hvað varðar afstöðu almennings hér á Íslandi til flugmódela.

Það ætlar að loða lengi við hér á Íslandi að karlmenn eigi annað hvort að vera í vinnunni, eða að drekka brennivín. Þess vegna eru flugmódel gjarnan kölluð ,,leikföng" og þá gjarnan í niðrandi tón.

Undantekningar eru þó til s.s. golf og fótbolti, að vísu er fótboltinn mest stundaður sem sjónvarpsáhorf og er þá oft notað tækifærið til neyslu áfengra drykkja, sem undirstrikar að sjálfsögðu karlmennskuna við þá ástundun.

Ofangreint er að sjálfsögðu aðeins til gamans og ber ekki að taka alvarlega.

Bestu kveðjur
Jón

Re: Flugmódel í kvöldfréttum RÚV í gær

Póstað: 15. Júl. 2009 18:48:29
eftir Aeroflot
Hefur einhverntíman verið gerð tilraun til að rétta þetta við? Þ.e. blanda saman sprútti/búsi og módelflugi og komu þessu á "fullorðinstig"

Ofangreint er að sjálfsögðu aðeins til gamans og ber ekki að taka alvarlega.

kveðjur og góða skemmtun í kvöld
pétur

Re: Flugmódel í kvöldfréttum RÚV í gær

Póstað: 15. Júl. 2009 18:51:06
eftir Björn G Leifsson
Eg hélt þetta væri grín??!!

Í mesta lagi get ég ímyndað mér að þetta frauð-fiðrldi dugi til þess að taka loftsýni í einhverri hæð en sér er nú hver útbúnaðurinn.
Ef vel á að vera og fylgja vísindalegri smámunasemi, þarf að minnsta kosti (ímynda ég mér) að vera hægt að skrá hæð tækisins. Kannski eru þeir með svoleiðis útbúnað??

Hvað eru mennirnir að mæla?

Einhver sem kann deili á þeim og getur hjálpað okkur að kynna þeim fyrir alvöru ómönnuð loftför ;) ?

Re: Flugmódel í kvöldfréttum RÚV í gær

Póstað: 15. Júl. 2009 19:36:16
eftir Gaui
[quote=Aeroflot]Hefur einhverntíman verið gerð tilraun til að rétta þetta við? Þ.e. blanda saman sprútti/búsi og módelflugi og komu þessu á "fullorðinstig"[/quote]
Svarið við því er JÁ og JVP gæti sagt okkur nokkrar sögur...

Re: Flugmódel í kvöldfréttum RÚV í gær

Póstað: 15. Júl. 2009 21:45:33
eftir Gummir
[quote=Björn G Leifsson]Eg hélt þetta væri grín??!!

Í mesta lagi get ég ímyndað mér að þetta frauð-fiðrldi dugi til þess að taka loftsýni í einhverri hæð en sér er nú hver útbúnaðurinn.
Ef vel á að vera og fylgja vísindalegri smámunasemi, þarf að minnsta kosti (ímynda ég mér) að vera hægt að skrá hæð tækisins. Kannski eru þeir með svoleiðis útbúnað??

Hvað eru mennirnir að mæla?

Einhver sem kann deili á þeim og getur hjálpað okkur að kynna þeim fyrir alvöru ómönnuð loftför ;) ?[/quote]
Það er ekki mjög flókið að mæla vindhraða með þessum búnaði, nálægt jörðu. Það var einmitt það sem þeir voru að gera. Hæðarmæling á módelinu er líka tiltölulega lítið mál. Þessar plastflugvélar eru einmitt mjög hentugar í svona mælingar, eins og sást í sjónvarpinu. Það væri raunar snjallt að nýta svona módel í veðurfræði kennslu í skólum og raunar eðlisfræðikennslu líka:) Gæti dregið úr leiða nemenda og auðvitað stóraukið áhuga þeirra á flugmódelum.

Re: Flugmódel í kvöldfréttum RÚV í gær

Póstað: 15. Júl. 2009 22:44:59
eftir Valgeir
það væri alla vega hægt að kenna á eikverjar veðurfræðilegar tölur úr þessum froðukubbum
í stærðfræði tímum það mundi allavega gera þá skemtilegri :) :) :)

Re: Flugmódel í kvöldfréttum RÚV í gær

Póstað: 15. Júl. 2009 22:51:06
eftir Agust
Hvaða aðferð ætli þeir noti til að mæla vindhraða úr módelinu sem er á fleygiferð?

Annars voru þetta, sýndist mér, tveir útlendingar ásamt einum íslenskum veðurfræðingi.