Síða 1 af 1

Re: Tappatýnivörn

Póstað: 28. Júl. 2009 00:09:34
eftir Björn G Leifsson
Eldsneytiskerfið fyrir YS mótora er lokað og undir talsverðum þrýstingi sem tryggir eldsneytisflæði að blöndungnum.
Mótorinn gengur ágætlega á litlum snúningi þó kerfið sé opið en um leið og hann fer að erfiða, þá drepst fyrr eða seinna á honum þar sem þrýstinginn vantar á kerfið.
Þegar tappað er á og af þarf að opna yfirfallið og það kom einu sinni fyrir mig að gleyma að setja tappann í það og þá drapst á í flugtaki með leiðindaafleiðingum fyrir hjólastellið á flygildinu.

Ég er nú að útbúa Imagine vél með YS-63 sem er alger eðalmótor að mínu viti. Hann rauk í gang núna áðan þrátt fyrir árs notkunarleysi og gekk eins og vel smurt vasaúr.

Til þess að koma í veg fyrir að ýna tappanum og vonandi minnka líkurnar á að gleyma að setja hann í þá datt mér það snjallræði í hug að hengja hann við skrokkinn.

Ég boraði 2mm gat í flansinn á tappanum og festi vír í hann. Hér sést þessi snilldar-útbúnaður.

Mynd

Hér erönnur umfjöllun um sömu vél

Re: Tappatýnivörn

Póstað: 28. Júl. 2009 00:15:26
eftir Þórir T
Fín hugmynd...

Re: Tappatýnivörn

Póstað: 28. Júl. 2009 00:18:57
eftir Páll Ágúst
Hvar fæ ég svona tappa?

Re: Tappatýnivörn

Póstað: 29. Júl. 2009 22:37:54
eftir Gaui K
díses ! Ér er búin að týna þrem svona töppum !!
það gerist ekki hér eftir. Það klikkar ekki :einfalt og gott.

Re: Tappatýnivörn

Póstað: 2. Sep. 2009 09:36:14
eftir einarak
einsog smurt tölvuúr