Síða 1 af 1

Re: Vængrör búið til

Póstað: 24. Ágú. 2009 23:00:26
eftir Gaui
Margir hafa komið a máli við okkur hér fyrir norðan og beðið um nákvæmar leiðbeiningar um hvernig á að búa til vængrör. Við höfum því ákveðið að sýna það hér.

Það fyrsta sem þarf að gera er að ná sér í álrör sem er um 2,5 sm eða ein tomma í þvermál. Árni náði í slíkt rör í Múrbúðinni (??) fyrir lítinn pening. Þar hét það skaft fyrir málningarrúllur. Moppusköft eru einnig vinsæl.

Fyrst þarf að ganga úr skugga um að rörið sé hreint og laust við alla límmiða:

Mynd

Síðan er ræma af bökunarpappír sem nær einu sinni utan um rörið skorin til:

Mynd

Rörið er penslað með Vaselíni eða Júgursmyrsli eða öðrum álíka smurefnum:

Mynd

Svo er bökunarpappírinn vafinn upp á rörið:

Mynd

Hugsanlega þarf að pensla meira af vaselíni á rörið til að pappírinn liggi sléttur. Þá getur verið gott og gaman að fá aðstoð hjá góðum vini:

Mynd

Pappírnn sem nota skal er maskínupappír sem fenginn er í Byko/Húsó tegund af verslun fyrir lítið fé. Um einn lengdarmetri er notaður til að fá rör sem er með á milli 2 og 3 mm veggþykkt:

Mynd

Re: Vængrör búið til

Póstað: 24. Ágú. 2009 23:07:14
eftir Gaui
Nú er epoxý kvoðan blönduð. Við notuðum í allt um 50 ml af kvoðu og 50 ml af herði:

Mynd

Til að epoxýið flæði betur var síðan 50 ml af rauðspritti blandað við:

Mynd

Byrjað er á að pensla epoxýinu á pappírinn:

Mynd

og rörið með bökunarpappírinn utanum lagt ofan á:

Mynd

Svo er byrjað að vefja. Fyrsti vafningurinn er erfiðastur, því pappírinn streitist á móti og vill ekki utanum rörið.

Mynd

Þegar komnir eru um tveir vafningar er þetta farið að ganga betur. Þá er bara pennslað á pappírinn:

Mynd

og svo vafið upp á rörið:

Mynd

Re: Vængrör búið til

Póstað: 24. Ágú. 2009 23:12:38
eftir Gaui
Hér er endirinn farinn að nálgast og farið að lækka mikið í epoxýdollunni.

Mynd

Til að pappírinn rakni ekki aftur ofan af rörinu er málningarlímband notað til að halda honum:

Mynd

Það er gott að setja ræmur af límbandi nokkuð þétt til að festa röndina á pappírnum vel niður:

Mynd

Og hér er svo rörið komið.

Mynd

Þegar epoxý harðnar myndast hiti og ef það er heitt í kringum rörið, þá harðnar það fyrr og verður harðara. Það verður því látið liggja á ofninum í um það bil viku áður en hægt er að skera það í lengdir og pússa utan af því.

Mynd

Við setjum seinna inn myndir af því hvernig gengur að ná álrörinu innan úr epoxy/pappa rörinum.

Re: Vængrör búið til

Póstað: 24. Ágú. 2009 23:14:27
eftir Björn G Leifsson
Á Skáni er til orðtæki sem er svona:

Me' våll' vilja o lita vasselin, så går de' mesta.

Útleggst á íslensku:

Með valdi, vilja og smávegis vaselíni þá er flest hægt.

Re: Vængrör búið til

Póstað: 28. Ágú. 2009 07:27:29
eftir Gaui
Margir héldu að þetta yrðu átök og að það væri meiriháttar vandamál að ná rörunum í sundur, þyrfti bæði afl, kraf og orku til:

Mynd

Em, í rauninni er það ekki þannig, þökk sé smurningunni :)

Til að ná rörunum í sundur er byrjað á því að skera smá bút af, svo að innra rörið sjáist. Stundum þarf það ekki ef rörið er lengra en pappírinn:

Mynd

Svo er notuð töng til að halda í það á meðan annar togar ytra rörið af. Þetta ætti að ganga eins og smurt, enda er það líka smurt:

Mynd

Og sjá, þá hafið þér tvö rör sem hægt er að nota í vængi:

Mynd

Einfalt, ódýrt og virkar ;)

Re: Vængrör búið til

Póstað: 28. Ágú. 2009 08:06:21
eftir Agust
Féllu kapparnir í gólfið þegar rörin hrukku í sundur?

Re: Vængrör búið til

Póstað: 28. Ágú. 2009 13:44:54
eftir Páll Ágúst
En til hvers er allt þetta sett utaná og tekið aftur af ?

Re: Vængrör búið til

Póstað: 28. Ágú. 2009 14:32:48
eftir Gaui
Það er til að geta tekið vænginn í sundur. Ytra rörið er límt í vænginn og þegar það er sagað í tvennt á réttum stað, þá er hægt að nota innra rörið til að halda vængnum á sínum stað:

Mynd

Re: Vængrör búið til

Póstað: 28. Ágú. 2009 15:34:42
eftir Árni H
[quote=Agust]Féllu kapparnir í gólfið þegar rörin hrukku í sundur?[/quote]
Enginn flugmódelmaður skaðaðist við gerð þessara mynda :)