Smíðuð frá grunni, vigtar 42kg, er 450 cm á lengd, vænghaf 280 cm, hönnuð fyrir 2x Jetcat P200 en flýgur með 180 á myndbandinu... eða þangað til að hún missir mótor í flugtaki...
Re: Var að spá í að fá mér Eurofighter
Póstað: 30. Okt. 2009 14:15:05
eftir Páll Ágúst
Jáh! Jáh! Jáh! Rosa flott þota Alvöru herþota (er það ekki?)
Re: Var að spá í að fá mér Eurofighter
Póstað: 30. Okt. 2009 14:54:38
eftir Jónas J
Lýst mjög vel á þetta hjá þér Sverrir. Flott þota
Og bara að muna að pósta þráð á Á vinnuborðinu / Eurofighter og leifa okkur að fylgjast með.....
Kveðja Jónas J
Re: Var að spá í að fá mér Eurofighter
Póstað: 30. Okt. 2009 16:11:34
eftir Fridrik
Karlamaður í Kjól að fljúga Eurofighter kemur hann með kittinu Sverrir, vantar bara Viskustykkið og vifturreymina á hausinn
kv
Friðrik
Re: Var að spá í að fá mér Eurofighter
Póstað: 30. Okt. 2009 16:33:12
eftir gudniv
Sverrir stórhuga um þessar mundir......
Re: Var að spá í að fá mér Eurofighter
Póstað: 30. Okt. 2009 18:27:36
eftir Sverrir
[quote=Fridrik]Karlamaður í Kjól að fljúga Eurofighter kemur hann með kittinu Sverrir, vantar bara Viskustykkið og vifturreymina á hausinn[/quote]
Ég var að vona að þú gætir plöggað flutninginn fyrir mig!?
[quote=gudniv]Sverrir stórhuga um þessar mundir......[/quote]
Er það eitthvað nýtt, sjáðu bara Fréttavefinn.
Re: Var að spá í að fá mér Eurofighter
Póstað: 30. Okt. 2009 18:27:57
eftir Gaui
Þeir tuskuhausarnir ættu að prófa að lemja mótrinn svona 60 sinnum með svipu og sjá svo hvort hann gerir ekki það sem til er ætlast af honum.
Svo væri kannski ekki úr vegi að berja hjólastellið smávegis líka.
Ég legg til að við hættum að dást að því sem kallarnir með viskustykkin og viftureimarnar gera þangað til þeir fara að haga sér eins og það sé komin 21. öldin.
Re: Var að spá í að fá mér Eurofighter
Póstað: 30. Okt. 2009 23:02:54
eftir Sverrir
Módelmenn láta ekki trúmál og pólitík skemma áhugamálið!
Annars get ég glatt þig með því að konungurinn í sandríkinu náðaði fréttakonuna.
Re: Var að spá í að fá mér Eurofighter
Póstað: 31. Okt. 2009 00:21:11
eftir Flugvelapabbi
Flottur gripur, vonandi eigum við eftir að smiða eitthvað i likingu við þessa vel, Gaui þu verður að slaka a það gilda aðrar reglur hja þessu folki sem okkur fynnst arfa vitlausar en eg held að við þurfum slikar reglur a þessa and...... banka menn sem eru bunir að keyra þessa þjoð til bölvunar og svo ganga þeir um rifandi kjaft og heimta meir, það ætti að setja þa alla sem einn i poka og nota akveðinn hyl a Þinvöllum til að baða þa, vera þjoðleg.
Kv.
Einar
Re: Var að spá í að fá mér Eurofighter
Póstað: 31. Okt. 2009 11:34:45
eftir Sverrir
Tók annars einhver eftir dekkjavælinu þegar hún lenti?
Hér eru sama vídeó með nokkrum myndum frá smíðinni.