Síða 1 af 5
Re: Twinstar
Póstað: 20. Feb. 2006 12:57:55
eftir Sverrir
Tengist öðru
smíðaverkefni sem er í gangi.
Re: Twinstar
Póstað: 20. Feb. 2006 17:06:52
eftir Ingþór
hvernig tengjast þessi verkefni? á að æfa single engin lendingar með þessari áður en hin er sett í loftið?
ég man að í bók sem ég fékk með fjarstýringunni minni eru mjög margar spennandi mixingar til nota á twinn, tildæmis setja skrúftakka til að mixa milli mótora, og mixa inn takka sem stíga á dauða mótorinn í réttu hlutfalli við inngjöf, þannig er hægt að auðvelda sér lendingar á öðrum mótor sem geta víst orðið mjög trikkí í sumum tilfellum.
Annars hljómar twinn sem voðalega skemmtileg hlið á módelsportinu, er þessi vél ekki sæmilega airobatic? væri hægt að gera margar skemmtilegar kúnstir, ég tala nú ekki umm ef hægt væri að setja skiptiskrúfur á þetta og fljúga soldið fönkí 3D
eins og þeir gera með fómíana
Re: Twinstar
Póstað: 20. Feb. 2006 17:52:52
eftir Sverrir
Tja, þetta er eins og þú hefur getið upp á æfingavél sem verður notuð áður en B25 flug hefst á komandi mánuðum.
Já 9X II bíður líka upp á marga skemmtilega möguleika þar á meðal tvær throttle kúrfur og fleira skemmtilegt fyrir twin,
reyndar sá ég einhvers staðar að MZ14 bíður upp á 4 hreyfla mixing
Þessi vél á að geta flogið á einum .25 FP mótor þannig að með tveimur ætti hún vonandi að hreyfast smá.
Menn hafa verið að setja allt upp í .46 legumótor í þær :rolleyes: en 2x .25 FP fara í þessa
En það gæti verið gaman að setja þetta upp þannig að hægt væri að draga af öðrum mótornum í beygju.
Gæti líka boðið upp á ansi hraða flata spuna
Re: Twinstar
Póstað: 21. Feb. 2006 02:03:11
eftir Sverrir
Re: Twinstar
Póstað: 24. Feb. 2006 08:12:25
eftir Þórir T
Ltila tvístjarnan mín er á fullu á smíðaborðinu, mótorarnir komnir í og allt á fullu, er að aðeins farið að skorta
servo til að stinga í hana...
mbk
TT (Tóti Twinstar)
Re: Twinstar
Póstað: 24. Feb. 2006 09:57:51
eftir Sverrir
Farðu bara varlega í að stinga í stjörnuna :rolleyes:
Re: Twinstar
Póstað: 24. Feb. 2006 10:47:01
eftir Þórir T
alltaf sami hugsunarhátturinn hjá ykkur könunum..... :/
mbk
Tótinn
Re: Twinstar
Póstað: 24. Feb. 2006 10:51:41
eftir Sverrir
Könum???
Re: Twinstar
Póstað: 24. Feb. 2006 16:08:23
eftir Þórir T
Eru þetta ekki eintómir ameríkanar þarna suður með sjó.. ?
nei ég bara spyr, heyri alltaf bara amerísku á götunum þarna þegar ég kem til keflavíkur....
mbk
T
Re: Twinstar
Póstað: 24. Feb. 2006 17:19:36
eftir Sverrir
Já þú átt að halda þig frá götunum, við erum á módelflugvellinum