Síða 1 af 1
Re: Langar þig að lífga upp á tölvupóstinn þinn?
Póstað: 6. Apr. 2010 17:31:01
eftir Sverrir
Ég hef tekið að mér umboðssölu á þessum tölvupóstlitum, dollan kostar um 5000 kr og dugir ansi lengi*. Til að byrja með verður boðið upp á 16 liti en þegar fram líða stundir stendur til að stækka lagerinn í 16.777.216 liti. Einstakt kynningartilboð á 16 litum, verð aðeins 50.000 krónur.
Áhugasamir hafi samband!
*Ekki er víst að árangur náist hjá öllum, notkun á eigin ábyrgð!
Re: Langar þig að lífga upp á tölvupóstinn þinn?
Póstað: 6. Apr. 2010 17:45:46
eftir Aeroflot
Og meðan þú býður bara upp á 16 liti þarf ég þá líka að grafa upp úr geymslunni/haugnum gamla EGA skjákortið og skjáinn? Eða ráða nýjustu "top of the line" kortin við þetta jafnvel?
Re: Langar þig að lífga upp á tölvupóstinn þinn?
Póstað: 6. Apr. 2010 17:48:10
eftir Sverrir
Öll ný skjákort í dag geta skalað niður á við. En þú getur svo blandað þessum litum saman að vild til að ná þeim litbrigðum sem þú vilt!
Re: Langar þig að lífga upp á tölvupóstinn þinn?
Póstað: 6. Apr. 2010 21:30:19
eftir Ingþór
áttu fjólubleikan?
Re: Langar þig að lífga upp á tölvupóstinn þinn?
Póstað: 6. Apr. 2010 21:46:56
eftir Agust
Ég var einmitt að kaupa svona Email málningu í Tómó um daginn. Það er víst roksala í þessu, þannig að menn þurfa að hafa hraðann á.
Sverrir, ertu búinn að ná Revell umboðinu af Tómó?
Re: Langar þig að lífga upp á tölvupóstinn þinn?
Póstað: 6. Apr. 2010 23:22:32
eftir Sverrir
[quote=Ingþór]áttu fjólubleikan?[/quote]
Já, ég var einmitt að fá nokkra í bleikum litatónum í dag, svartbleikur og grænbleikur eru líka til.
[quote=Agust]Ég var einmitt að kaupa svona Email málningu í Tómó um daginn. Það er víst roksala í þessu, þannig að menn þurfa að hafa hraðann á.
Sverrir, ertu búinn að ná Revell umboðinu af Tómó?[/quote]
Nei þeir eru bara að selja hana í módelmálun, þó þetta virðist vera nákvæmlega sama varan þá er svo ekki. Varist eftirlíkingar, það er bara einn söluaðili fyrir tölvupóstmálningu hér á landi!