Extra 330sc foam

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
Haraldur
Póstar: 1409
Skráður: 20. Maí. 2005 15:19:44

Re: Extra 330sc foam

Póstur eftir Haraldur »

Þá er pakkinn loksins komin frá fríi í Florida, ekki seinna vænna þar sem inniflugvertíðinni er að ljúka.

Í pakkanum er Extra 330sc foam frá ElectryFlight.
Mynd
Annað í pakkanum:
S3114 servo, Rimfire 250 mótor, 8A ESC - Silver Series, 2S-7.4v-lipo,
allt tengd með micro Deans Plug.
8x3.8SF spaðar og Spektrum AR6110e móttakari (ætli ég hafi gleymd að panta kristallinn??)


Svona lítur út inn í kassanum.
Mynd

Ég fékk líka gull lím frá Steve og Julie. Þetta verður jú að vera eðal.
Mynd


Annars er þetta eins vel og Yak55 sem Sverrir er með og byggist eins.
Kannski maður fái hjálp frá meistarnum sjálfum ;-)
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Extra 330sc foam

Póstur eftir Sverrir »

Glæsilegt, reikna með að sjá hana næsta sunnudag! :cool:

[quote=Haraldur]Annars er þetta eins vel og Yak55 sem Sverrir er með og byggist eins.
Kannski maður fái hjálp frá meistarnum sjálfum ;-)[/quote]
Ég vísa auðvitað í hávísindalegan smíðaþráð! Vertu endilega í bandi ef þú heldur að það sé eitthvað sem ég get hjálpað þér með. Áhugasamir geta svo skoðað mynd af þeim systrum hlið við hlið á þræði frá JR Indoor Electric Festival í fyrra en þar má líka sjá fleiri vélar sem eru vel þekktar hjá Innherjum.
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Haraldur
Póstar: 1409
Skráður: 20. Maí. 2005 15:19:44

Re: Extra 330sc foam

Póstur eftir Haraldur »

Hvernig er með svona activator sem ég sé alla vera sprauta í allar áttir?
Á maður að nota slíkt eða bara láta límið duga?
Ef já, hvar er best að nálgast brúsa af slíku?
Passamynd
maggikri
Póstar: 5881
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Extra 330sc foam

Póstur eftir maggikri »

Ég varð að eiga þær báðar og keypti systurskipin nema þær eru frá Dualsky. Yak 54 Pro og Extra 330 SC. Pantaði þær frá https://2dogrc.com/index.php
Sjá þráð:
http://frettavefur.net/Forum/viewtopic.php?id=3766
kv
MK
Passamynd
maggikri
Póstar: 5881
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Extra 330sc foam

Póstur eftir maggikri »

[quote=Haraldur]Hvernig er með svona activator sem ég sé alla vera sprauta í allar áttir?
Á maður að nota slíkt eða bara láta límið duga?
Ef já, hvar er best að nálgast brúsa af slíku?[/quote]
Sæll Halli
Þú færð þornunarefnið í Handverkshúsinu Bolholti 4.

kv
MK
Passamynd
Haraldur
Póstar: 1409
Skráður: 20. Maí. 2005 15:19:44

Re: Extra 330sc foam

Póstur eftir Haraldur »

Fór í dag í Handverkshúsið. Þar fæst líka svona foam safe lím eins og er á myndinni hérna fyrir ofan.
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Extra 330sc foam

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Talandi um foam safe og activator eða "kicker" þá er eitt lítið atriði sem gott er að vita.
Þegar límið storknar þá myndast hiti. Kicker eykur hraða storknunarinnar og þar með hitamyndunina, þeas það verður hærra hitastig. Því meira sem er af lími og því hærri sem áhrifin af kickernu eru, því hærra hitastig myndast og það getur brætt frauðið.

Sem sagt, nota bæði lím og kicker sparlega.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Haraldur
Póstar: 1409
Skráður: 20. Maí. 2005 15:19:44

Re: Extra 330sc foam

Póstur eftir Haraldur »

Jepp, enda er minnst á þetta atriði í leiðbeiningunum.
Passamynd
Haraldur
Póstar: 1409
Skráður: 20. Maí. 2005 15:19:44

Re: Extra 330sc foam

Póstur eftir Haraldur »

Með hverju límið þið karbon stangirnar við frauðið?
- með heitu lími?
- með fome safe lími?
- með CA lími?
- einhverju öðru?
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Extra 330sc foam

Póstur eftir Sverrir »

CA(hvort sem það heitir foam safe eður ei(auðvitað ekki þunnt)), alls ekki nota hot glue, alltof þungt!

Það sakar ekkert að rispa stangirnar létt með fínum sandpappír en á ekki að þurfa.
Icelandic Volcano Yeti
Svara