Síða 1 af 1

Re: Samsetningartími flugvéla

Póstað: 19. Mar. 2006 19:54:45
eftir Þórir T
Hafið þið spáð í hversu langann tíma tekur að setja saman eitt gott flugmódel, þá er ég ekki að meina
treinera með teygjuvæng...
kíkið á þetta tekur 7 og hálfa mínutu, jebb, 7 og hálfa..

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=154833

mbk
Tóti

Re: Samsetningartími flugvéla

Póstað: 19. Mar. 2006 20:57:51
eftir Sverrir
Þeir hljóta að hafa notað sýrulím :P

Re: Samsetningartími flugvéla

Póstað: 19. Mar. 2006 21:13:12
eftir Björn G Leifsson
Jájá... þetta er tækni sem er vel þekkt í módelsmíði. Sennilega hafa þeir lært þetta af flugmódelmönnum.
Oftast eru svona vélar seldar undir samheitinu "ARF" eða "ARTF" sem þýðir Almost Ready to Fly. Þykir minna fínt en að byggja frá grunni.
Við íslendíngar tölum stundum svolítið niðrandi um svona ódýrar lausnir og köllum þær "arfa" þeas svona vélar sem menn kaupa hálf tilbúnar.