Síða 1 af 1

Re: Vefverslun í Þýskalandi

Póstað: 20. Mar. 2006 22:29:50
eftir Agust
Modell Antriebe nefnist vefverslun sem sérhæfir sig í rafmagnsmótorum og tilheyrandi. Ég pantaði nýlega mótor og meðlæti frá versluninni og átti ánægjuleg samskipti við eigandann sem heitir Martin Helmschrott-Runge.

Þegar ég opnaði pakkann kom í ljós innan um allt módelgóssið pakki af Zitronen Creme-Schokolade :-)


Þessi póstverslun er gullnáma fyrir alla sem unna rafmagnsflugi.

www.modellantriebe.de

Re: Vefverslun í Þýskalandi

Póstað: 20. Mar. 2006 23:54:19
eftir Sverrir
Hvernig smakkaðist svo sítrónusúkkulaðikremið ? :rolleyes:

Re: Vefverslun í Þýskalandi

Póstað: 21. Mar. 2006 20:47:52
eftir Agust
Er þetta ekki módellím? :P Ætli það smakkist þá ekki eins og bakhliðin á frímerki?

Re: Vefverslun í Þýskalandi

Póstað: 22. Mar. 2006 00:04:05
eftir Sverrir
Nú veit ég ekki, þekki ekki svona framandi nýlenduvörur :)