Skaust upp á Tungubakka í blíðunni í dag og skellti Viperjet í loftið, Einar brúkaði myndavélina fyrir mig og kann ég honum bestu þakkir fyrir það. Einar og Skjöldur tóku einnig nokkur flug, ég lá bara í sólbaði og horfði á í stað þess að munda myndavélina, og svo skilst mér að Jón hafi mætt eftir að ég fór.
Frábær dagur og hann er ekki búinn enn, Arnarvöllurinn verður tekinn á eftir í kvöldblíðunni!
Svo var þessi eiginlega of góð til að sleppa, ef það hefði ekki vantað framan á nefið þá hefði þetta verið ein af flottari myndunum í seríunni.
Algerlega frábærar myndir, svo tökur koma bara með reynslu. Einsog Tiger Woods sagði, þegar einhver fullyrti að hann væri "natural" golfari, " þetta er alveg natural, en það er merkilegt hvað ég verð meira natural, því meira sem ég æfi"