Síða 1 af 2

Re: Super Tigre 3000

Póstað: 25. Jún. 2010 01:10:49
eftir Ágúst Borgþórsson
Ég er búinn að vera með það í kollinum í ca. eitt og hálft ár
að breita glóðarmótor í bensín.
Nú var komið að því, ég fór á mánudaginn og lét renna fyri mig flangsinn undir blöndunginn
og hringinn fyrir skynjarann
Svo var borað snittað sagað og sorfið
Í kvöld fór ég með hann útá Arnarvöll
setti ég svo gripinn í gang og hann gengur einsog klukka :D
Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd

Meira um málið seinna

Re: Super Tigre 3000

Póstað: 25. Jún. 2010 01:13:10
eftir Haraldur
Þúsund þjalasmiður :-)

Það verður ekki langt þangað til að þú hannar og smíðar alla hlutina í flugvélina. Tréverk og mótor.

Re: Super Tigre 3000

Póstað: 25. Jún. 2010 09:24:22
eftir INE
Gústi!

Ég er með brauðrist sem mig langar að láta ganga fyrir sólarorku, mér sýnist að þú sért maðurinn sem getur látið þann draum rætast.

Snilld þetta með mótorinn!

Kveðja frá Jeddah, Saudi Arabia.

Ingólfur.

Re: Super Tigre 3000

Póstað: 25. Jún. 2010 10:39:23
eftir Sverrir
Gústi er flottur á því! :cool:

Smá vídeó af mótornum í gangi.


Re: Super Tigre 3000

Póstað: 25. Jún. 2010 10:48:55
eftir lulli
Áhugavert með meiru, ertu ekki kominn þá með ttl. léttann Bensínmótor í hendurnar?

Re: Super Tigre 3000

Póstað: 25. Jún. 2010 15:05:23
eftir einarak
geggjað, Þurfti ekkert að lækka þjöppuna?

Re: Super Tigre 3000

Póstað: 26. Jún. 2010 00:47:45
eftir Ágúst Borgþórsson
[quote=einarak]geggjað, Þurfti ekkert að lækka þjöppuna?[/quote]
Jú, ég setti þykkari hring undir heddið

Re: Super Tigre 3000

Póstað: 26. Jún. 2010 00:52:16
eftir Ágúst Borgþórsson
[quote=lulli]Áhugavert með meiru, ertu ekki kominn þá með ttl. léttann Bensínmótor í hendurnar?[/quote]
Ég er ekki búinn að vikta hann en ég tel það víst að hann sé í léttari kantinum.Hann er 1760g.með öllu og hann snýr 18x8 propp á 8200 snúningum.

Re: Super Tigre 3000

Póstað: 26. Jún. 2010 00:57:13
eftir Ágúst Borgþórsson
[quote=INE]Gústi!

Ég er með brauðrist sem mig langar að láta ganga fyrir sólarorku, mér sýnist að þú sért maðurinn sem getur látið þann draum rætast.

Snilld þetta með mótorinn!

Kveðja frá Jeddah, Saudi Arabia.

Ingólfur.[/quote]
Þarftu nokkuð brauðrist þarna? hendirðu ekki brauðinu bara í sandinn? :D
Á ekkert að fara að koma sér heim???

Re: Super Tigre 3000

Póstað: 26. Jún. 2010 01:06:07
eftir Ágúst Borgþórsson
[quote=Haraldur]Þúsund þjalasmiður :-)

Það verður ekki langt þangað til að þú hannar og smíðar alla hlutina í flugvélina. Tréverk og mótor.[/quote]
Takk fyrir hrósið Haraldur :cool: Þetta er ekki síst skemtilegur partur af þessu áhugamáli.
Svo á nú eftir að sjá hvernig hann reynist.