þetta er flott, en endar þetta ekki með kennslumyndbandi í fullri lengd
Re: tog-tog
Póstað: 17. Okt. 2010 01:57:37
eftir Haraldur
Er ekki betra að þegar þriðja þræðingin er gerð að hafa lykkju utan um koparörið þannið að þriðja þræðing fara í gegnum rörið í sömu átt og önnur þræðing?
Afhverju er push-push notað í stað einvíra?
Re: tog-tog
Póstað: 17. Okt. 2010 09:29:35
eftir Gaui
[quote=Haraldur]Er ekki betra að þegar þriðja þræðingin er gerð að hafa lykkju utan um koparörið þannið að þriðja þræðing fara í gegnum rörið í sömu átt og önnur þræðing?[/quote]
Ekkert endilega - það sem maður er að fá er fylling, þ.e. að fylla koparrörið svo mikið að ekkert geti hreyfst. Þá skiptir ekki máli í hvaða átt það fer. Aðal málið er að klemma rörið vel utan um eins marga víra og komast í gegnum það. Þess vegna nota ég væsgrip töngina.
Ég hef notað báðar aðferðir og finn engan mun á þeim annan en þann, að sú sem ég sýndi er snyrtilegri. Ég hef líka notað svo mjó rör og þykka víra að eina leiðin til að koma tveim endum í var að fletja rörið aðeins út. Þá þarf maður ekki þriðju þræðinguna (og kemur henni raunar aldrei í). Í þeim tilfellum friða ég samviskuna með því að setja Zap á rörið.
[quote=Haraldur]Afhverju er push-push notað í stað einvíra?[/quote]
Það er pull-pull (ísl. tog-tog) og það er betra að nota það þar sem það er mögulegt vegna þess að á hefur maður betra aðhald á stýrinu. Servóið er alltaf að toga. Þá er engin hætta á að servóið ýti á vírinn og ekkert gerist nema að vírinn bognar. Svokallað "Blow-back", þegar stýrið fýkur til baka frekar en að fara þangað sem maður vill láta það fara, er ekki mögulegt.