Síða 1 af 13

Re: CARF Eurosport

Póstað: 9. Nóv. 2010 22:53:27
eftir Sverrir
Jæja, þá er komið að því, ný vél í staðinn fyrir Viperjet sem staldraði alltof stutt við. Þegar Viperjet var keypt á sínum tíma þá var ég lengi að gera upp á milli þessara tveggja svo ég ákvað að láta slag standa. Þannig að hér er hún komin, Eurosport í svissneskum litum a la Patrouille Suisse en Viperjet á eflaust eftir að sjást aftur hér á landi.

Módel: CARF Eurosport
Mótor: Jetcat P160-SX
Hjólastell: Pro-Link
Merkingar: Tailormadedecals

Þökk sé SAS og IcelandAir Cargo þá kom vélin hingað á örfáum dögum, Thailand(29.10) - Noregur - Ísland(3.11), yfir hálfan hnöttinn en hún var ekki til í Evrópuvöruhúsinu hjá CARF. Þannig að á tímabili átti maður þotu í Thaílandi, mótor í Bretlandi(virðist vera í Malmö núna), límmiða í Danmörku og hjólastell í Ameríku, svo sannarlega alheimsverkefni!

Sæmilegir kassar.
Mynd

Mynd

Þrátt fyrir „kick-me“ merkingar komst hún óskemmd heim í hús. ;)
Mynd

Fínn frágangur.
Mynd

Mynd

Re: CARF Eurosport

Póstað: 9. Nóv. 2010 23:30:17
eftir Björn G Leifsson
Úúúúúúú!!!!!..... spennandi.

Verður væntanlega með Vektored thrust, ekki satt ? ;)

Re: CARF Eurosport

Póstað: 9. Nóv. 2010 23:55:46
eftir Sverrir
Nei.

Re: CARF Eurosport

Póstað: 10. Nóv. 2010 04:15:42
eftir Fridrik
Já sæll,

Hamingju með gripinn

kv
Friðrik

Re: CARF Eurosport

Póstað: 10. Nóv. 2010 08:18:56
eftir maggikri
Flott flugskýli!
kv
MK

Re: CARF Eurosport

Póstað: 10. Nóv. 2010 08:32:40
eftir Jónas J
Til hamingju með þessa Sverrir.. Verður gaman að fylgjast með þessu verkefni hjá þér. :)

Re: CARF Eurosport

Póstað: 10. Nóv. 2010 10:31:12
eftir Gaui
Nice one !

Re: CARF Eurosport

Póstað: 10. Nóv. 2010 13:04:43
eftir lulli
Meiriháttar flott hjá þér félagi.
Eru hlífðar-coverin std frá framleiðanda?
þetta fer nú að kalla á skúra heimsóknir til athafnamanna. (þó fyrr hefði verið)
Kv. Lúlli.

Re: CARF Eurosport

Póstað: 10. Nóv. 2010 17:05:58
eftir Árni H
Til hamingju með gripinn. Flott vél!

Re: CARF Eurosport

Póstað: 10. Nóv. 2010 18:54:22
eftir Messarinn
Djö... líst mér vel á þig Sverrir. Þetta verður spennandi verkefni, til hamingju
Nú er bara að vera duglegur að pósta myndum af sam-settningunni félagi

Kv Gummi