Síða 1 af 5
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Póstað: 13. Nóv. 2010 17:46:11
eftir Ólafur
Jæja þá barst mér loksins frá HK uppfærsla úr 35 mhz yfir i 2.4 Ghz. Þetta small eins og flis við rass aftani JR PCM9X II fjarstýringuna mina. Spurningin er hvernig ég fæ þetta til að virka?
Hvaða stillingum þarf að breyta ef það á að þurfa i fjarstýringuni.
Hérna eru nokkrar myndir af herlegheitunum.
Vantar ekki stóru orðin og svo er bara að sjá hvort þetta stenst allt en þess má geta að ég er með nokkra móttakara frá corona i 35 mhz kerfinu og er mjög ánægður með þá.
Móttakarinn sem er stærri fylgdi með þessu setti en ég keypti einn litin með i inniflugið.
Þessi littli er annars gerður fyrir minni gerðina af servotengjum svo ég spyr hvort hægt sé að vera með millistykki til að geta pluggað servóin við hann
Kv
Lalli
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Póstað: 13. Nóv. 2010 18:22:52
eftir Ólafur
Aðeins of fljótur á mér en auðvitað átti þetta að fara inn á hlið

Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Póstað: 13. Nóv. 2010 18:24:37
eftir Ágúst Borgþórsson
Áttu svona micro skott?
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Póstað: 13. Nóv. 2010 18:30:56
eftir Haraldur
Þú þarft væntanleg að setja allar flugvélarnar þínar upp aftur, því að þú ert að setja nýjan móttakara í þær. Allir móttakarar eru pínulítið öðruvísi en hinir.
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Póstað: 13. Nóv. 2010 18:51:34
eftir Messarinn
Flottur Ólafur
Ég á einmitt svona stýringu með lausum 35mhz module og spennandi að fylgjast með þessu,
hvað kostaði þetta 2.4g hjá þér?
Kv Gummi Messari
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Póstað: 13. Nóv. 2010 18:59:03
eftir Björn G Leifsson
Ég á ekki von á að þú þurfir að breyta neinu í uppsetningum. Bara passa að servóin tengist í réttar rásir. Uppsetningin í fjarstýringunni breytist ekkert. Þaðð er bara sendimódúllinn sem notar aðra samskiptatíðni og tækni. Ég yrði líka hissa ef trim/miðjun eða útslög breyttist eitthvað þó þú sért með annan móttakara.
Þó eins gott að tékka á öllu, prófa og prófa aftur. Athuga drægni og huga að miðjun/trimmstillingum. Athuga drægnina aftur með mótorinn í gangi. Fá sér kaffi og kleinur og fara svo í gegnum allt aftur... eheh bara að grínast með það síðasta.
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Póstað: 13. Nóv. 2010 19:03:09
eftir Ólafur
Sæll Gummi
Þetta kostar 38 dollara á HK + fluttningur og vörugjöld hérna heima. Ekki mikill peningur þar en svo er bara að prófa en það prógress er i gangi núna
Bjössi takk fyrir innleggið er að reyna að fá virkni á milli sendir og móttakara en það gerist vist ekki sjálfkrafa eins og ég hélt
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Póstað: 13. Nóv. 2010 20:19:22
eftir Ólafur
Minimóttakarin svinvirkar og nú er bara að sjá hvernig hann kemur út i innifluginu á morgun.
Þurfti ekki að breyta neinu eins og Björn skrifaði það kom allt inn um leið og ég náði tengingu á milli

Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Póstað: 13. Nóv. 2010 23:16:08
eftir Gunni Binni
[quote=Messarinn]Flottur Ólafur
Ég á einmitt svona stýringu með lausum 35mhz module og spennandi að fylgjast með þessu,
hvað kostaði þetta 2.4g hjá þér?
Kv Gummi Messari[/quote]
Þessir
http://www.hobbycity.com/hobbycity/stor ... tegory=402 eru líka til hjá Hobbyking og hafa fengið góða dóma skv. testum hjá
http://rcmodelreviews.com/2.4ghzshootout.shtml og dýrari versionin bíður upp á Telemetriu (þvílík íslenska). Skv. sömu testsíðu er þeirra 2.4 GHz lausn mun betri en t.d. DSM2 hjá Spektrum.
Á einn svona
http://www.hobbycity.com/hobbycity/stor ... duct=14349 sem ég ætla að testa með Turnigy og JR stýringu, en hef ekki komið í verk enn.
Læt vita þegar það er gert.
Bæ ðö vei er ég vonandi að fá í hús fljótlega grunsamlega ódýra Spektrum móttakara
http://www.targethobby.com/spectrum-ar6 ... 61774.html fyrir $7.99. Sennilega too good to be true

en maður er forvitinn :rolleyes:.
Kveðja
Gunnar
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Póstað: 13. Nóv. 2010 23:16:23
eftir maggikri
Lalli, Halli Gústi , Gunni Binni ofl taka svo myndir og hreyfimyndir af innifluginu og pósta á vefnum!
kv
MK