Fyrir utan að vera talsvert nettari en fyrri Jetcat mótorar þá eru aðrar nýjungar t.d. einungis ein eldsneytisslanga að mótor, segulrofar eru inn í mótornum, ein rafmagnssnúra, hitaskynjari er ekki lengur utanáliggjandi og komið er nýtt ECU v10 sem er talsvert nettara.
Sagt er að hann eigi að koma út í Júní en það þýðir væntanlega að hann kemur ekki fyrr en á JetPower!
Jetcat P100-RX
P80(P120 og P160 nota sama bodý), P100 og P60.
Re: Nýr Jetcat, P100-RX
Póstað: 8. Mar. 2011 11:53:02
eftir Sverrir
Hérna sést hvað þarf um borð, fyrir utan mini GSU-ið neðst til vinstri, enda ekki oft sem maður þarf að draga það upp fyrir Þotuköttinn. Talsverður munur frá því sem þarf að hafa í dag og sjálfsagt munum við sjá nýjar útgáfur af núverandi mótorlínum í náinni framtíð sem notfæra sér þessar tækninýjungar.
Re: Nýr Jetcat, P100-RX
Póstað: 28. Júl. 2011 20:05:45
eftir lulli
15 hestöfl!!
Það engin spurning þarna er flott græja á ferðinni.
Og búnaðurinn að einfaldast, spurning að hoppa í djúpulaugina og vera kepppnis.
Re: Nýr Jetcat, P100-RX
Póstað: 28. Júl. 2011 23:26:48
eftir Sverrir
Þotumótorar eru ekki mældir í hestöflum! Þessi er 100N eða 10kg.
Þú drífur þig út í djúpu laugina, korkar og kútar á svæðinu ásamt kennurum!
Re: Nýr Jetcat, P100-RX
Póstað: 12. Sep. 2011 02:10:56
eftir Pétur Hjálmars
Jesus Jets á Spáni voru með annann minni og afflmeiri fyrir ca. 4 árum.
Við þurfum að skoða það betur , ef kallinn er ekki dauður,, hann var 79 ára þá.