Diabolo 1/3.2 frá Pilot
Re: Diabolo 1/3.2 frá Pilot
Sælir,
Diabolo frá Pilot hefur alltaf heillað mig. Einar Páll átti eina sem ég fékk hjá honum fyrir um ári síðan. Það kit var Einar byrjaður að setja saman og ég tók við verkefninu en ég verð að viðurkenna að ekki hef ég verið duglegur að smíða vegna tímaskorts .
Jóhann átti eina líka sem brotlenti hjá honum í fyrra, þá vel fékk ég hjá honum og er ég nánast búinn að laga. Á eftir að smíða nýjan eldvegg og laga húddið
Ég pantaði á hana klæðningu frá Kína "Red Bull" sem reyndar var skorið út fyrir 55cc Yak54 og passar líklega á þessa. Keypti seinna svo nokkrar rúllur af klæðningu í Red Bull litum þannig að hægt verður að hafa báðar vélarnar eins þ.e. Red Bull #1 og #2.
Tvo DLE55 mótora á ég sem eiga að fara í þessar.
Ég á líka "Smoke System" sem ég keypti fyrir nokkrum árum sem ég var að spá í að nota í aðra þeirra.
Hérna eru nokkrar myndir.
Kassinn (Kit) frá Pilot.
Eins og hún er í dag. Til gamans setti ég Extruna mína við hliðina á Diabolo.
Klæðningin frá Kína "Red Bull" Team
Svona lítur klæðningin út.
Mótorinn og "Smoke" kerfið.
Smá upplýsingar af kassanum.
Ég pósta aftur þegar eitthvað spennandi er að gerast hjá mér.
Kveðja,

Eysteinn Harry Sigursteinsson.
I’ve learned so much from my mistakes…
I’m thinking of making a few more.
I’ve learned so much from my mistakes…
I’m thinking of making a few more.
- Páll Ágúst
- Póstar: 646
- Skráður: 2. Maí. 2009 05:00:00
Re: Diabolo 1/3.2 frá Pilot
Alvöru vél Það verður gaman að sjá þessa í loftinu
Re: Diabolo 1/3.2 frá Pilot
Það er sko Formannsbragur á þessari, Þú ert sko aldeilis farinn að brýna klærnar fyrir stórudeildina.
Það verður gaman að fylgjast með þessari
Kv. Lúlli.

Flugmódelfélagið Þytur
Flugmódelfélag Suðurnesja
Flugmódelfélag Suðurnesja
Re: Diabolo 1/3.2 frá Pilot
Hehe..góður samanburður á vélunum..gangi þér vel með þessa...
If it's working...don't fix it...
Re: Diabolo 1/3.2 frá Pilot
69 dagar til stefnu gamli minn, nú er bara að hysja upp um sig smíðasvuntuna!
Þér á ekki eftir að leiðast með þessa út á velli.

Icelandic Volcano Yeti
Re: Diabolo 1/3.2 frá Pilot
Lýst vel á þetta hjá þér, lokksins kom að þessu hjá þér. Ég er búin að vera að bíða eftir þessum þræði frá þér
Svo er bara að kýla vel á þetta í fríinu he he he
Hvernig er með vænginn, varst þú búinn að laga brotin ????

Í pásu
Kveðja Jónas J
Kveðja Jónas J
Re: Diabolo 1/3.2 frá Pilot
[quote=Sverrir]69 dagar til stefnu gamli minn, nú er bara að hysja upp um sig smíðasvuntuna!
Þér á ekki eftir að leiðast með þessa út á velli. [/quote]
Jæja Meistari. Hvað er að frétta ? Er hún klár fyrir Patró ? 10 dagar til stefnu
Koma svo
Þér á ekki eftir að leiðast með þessa út á velli. [/quote]
Jæja Meistari. Hvað er að frétta ? Er hún klár fyrir Patró ? 10 dagar til stefnu
Koma svo
Í pásu
Kveðja Jónas J
Kveðja Jónas J
Re: Diabolo 1/3.2 frá Pilot
Nú er langt um liðið. Sverrir, getur þú spakað í rassgatið á Eysteini og aðstoðað hann við að koma rellunni á ról ?
Það er svo skuggalega lítið eftir ? Honum vantar leikfang eftir að Extran dó. Endilega bjallaðu á kallinn.
Bkv Jónas
p.s. koma svo
Það er svo skuggalega lítið eftir ? Honum vantar leikfang eftir að Extran dó. Endilega bjallaðu á kallinn.
Bkv Jónas
p.s. koma svo
Í pásu
Kveðja Jónas J
Kveðja Jónas J
Re: Diabolo 1/3.2 frá Pilot
Eysteinn, að klæða hana er ekkert má, meira að segja ég treysti mér til þess að strauja hana
Í pásu
Kveðja Jónas J
Kveðja Jónas J
Re: Diabolo 1/3.2 frá Pilot
[quote=Jónas J]Eysteinn, að klæða hana er ekkert má, meira að segja ég treysti mér til þess að strauja hana http://frettavefur.net/Bros/j_thumbup.gif[/quote]
Takk fyrir það Jónas. Ég er búinn að vera vængbrotinn síðan að Extran krassaði í vor. http://frettavefur.net/Forum/viewtopic.php?id=5055
Vandamálið hjá mér er bara tímaskortur, vinnan er hefur verið að trufla mig og svo er ég í stórframkvæmdum heima fyrir sem ég verð að klára. Líklega verður þeim framkvæmdum lokið í desember. Þá verð ég að setja fullan kraft í Diabolo. Ég verð að fá aðra flugvél sem kemur í staðin fyrir Extruna sem allra fyrst!! Ég þarf að fá stóra listflugvél!!!!