Síða 1 af 1

Re: Funjet Ultra með Jetcat P20SE

Póstað: 20. Maí. 2011 23:28:16
eftir Sverrir
Eins gott að blikka ekki augunum þegar þessi er á ferli.


Re: Funjet Ultra með Jetcat P20SE

Póstað: 21. Maí. 2011 09:13:43
eftir Gaui
Vó! Mótorinn hálft kíló, módelið 50 grömm = hraðinn ógurlegur

:cool:

Re: Funjet Ultra með Jetcat P20SE

Póstað: 21. Maí. 2011 10:11:26
eftir Sverrir
Mótorinn er 350 gr með öllu, módelið sjálft um 900 gr.

Re: Funjet Ultra með Jetcat P20SE

Póstað: 21. Maí. 2011 22:17:18
eftir Björn G Leifsson
Hægt að skemmta skrattanum á ýmsan hátt.

Hvað finnst mönnum um skynsemina í því að fljúga módeli sem vegur eitt kíló, í nágrenni við íbúðablokkir, í ljósaskiftunum, á um 400-500 km hraða á klukkustund? Varla auðvelt að sjá afstöðu þessa litla kvikyndis þar sem það ber í ljósann himinn og hvað þá á þessum hraða.

Lauslega reiknað þá er hreyfiorka módelsins um 5-6 Kj/kg sem er svipað og byssukúlu. Ekki laust við að það fari um mann við að sjá þetta.

viðbót: Þessi hreyfiorka er er um það bil sama og 25 kg steinn sleppt úr 25 m hæð. Ekki beint ánægður sá sem fær það í sig

Re: Funjet Ultra með Jetcat P20SE

Póstað: 17. Sep. 2011 22:12:10
eftir Agust
Sverrir

Hvar fæ ég svona mótor í mína Funjet? Hvaða stærð osfrv?

-

Svo er hægt að koamast hratt með rafmagninu:

1600 wött!




Re: Funjet Ultra með Jetcat P20SE

Póstað: 18. Sep. 2011 01:03:18
eftir Sverrir
Þetta er Jetcat P-20, 20N af kný, fæst t.d. hjá Ali og co.

Re: Funjet Ultra með Jetcat P20SE

Póstað: 18. Sep. 2011 07:00:02
eftir Agust
Only £1899.00 (£1582.50 excluding VAT)

Kannski ég haldi mig bara við rafmagnið. Það er framtíðin.