Síða 1 af 2

Re: Arnarvöllur - 28.maí 2011

Póstað: 28. Maí. 2011 18:45:04
eftir Sverrir
Líf og fjör út á Arnarvelli í dag, grasið að taka við sér eftir rigningu vikunnar. Gunni kom með MX2 og flaug eftir viðgerðina, Ingólfur átti góða spretti á Intro, Steinar leit við með Freedom sem er komin með rafmagnsmótor og krúttlegan Yakohoiski. Steini og Anna tókum einnig púlsinn á liðinu og Helgi var í rafmögnuðu Honda stuði.

MX klikkar ekki, Gunni frekar sáttur.
Mynd

Ys og þys.
Mynd

Mynd

Mynd

Ingólfur að verða nokkuð lunkinn með Intró.
Mynd

Freedom 20 með rafmagnsmótor.
Mynd

Krúttleg
Mynd

Svona var nú fyrsta vélin sem maður smíðaði!
Mynd

Sennilega með minnstu módelbílum landsins, tekur eina þotu ásamt fylgihlutum og tvo fullvaxna karlmenn.
Mynd

Merrild er einn stærsti styrktaraðili félagsins.
Mynd






Re: Arnarvöllur - 28.maí 2011

Póstað: 28. Maí. 2011 19:34:14
eftir SteinarHugi
Nokkrar ljósmyndir

Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd

kvSH

Re: Arnarvöllur - 28.maí 2011

Póstað: 28. Maí. 2011 20:24:57
eftir Flugvelapabbi
Flott hja ykkur, til hamingju baðir tveir
Kv
EPE

Re: Arnarvöllur - 28.maí 2011

Póstað: 28. Maí. 2011 20:25:46
eftir Sverrir
Liggur við að maður þjáist af linsuöfund, flottar myndir!

Re: Arnarvöllur - 28.maí 2011

Póstað: 28. Maí. 2011 20:42:37
eftir Páll Ágúst
Hvaða linsa er þetta? :O (og hvaða vél)
Frábærar myndir!

Re: Arnarvöllur - 28.maí 2011

Póstað: 28. Maí. 2011 21:16:08
eftir SteinarHugi
Þetta er Canon EOS 1Ds Mark II body með Canon EF 70-200mm F/2.8L IS mark II linsu og 2x extender. Aðeins meira gler en í iPhone-inum hans Sverris =)

Þrátt fyrir allar þessar græjur er vélin að hálf kox-a á appelsínugula litnum á TF-JET, sjáið að hann er óeðlilega rauður á ákveðum svæðum. Kemur hálf undarlega út.

SH

Re: Arnarvöllur - 28.maí 2011

Póstað: 28. Maí. 2011 21:20:31
eftir Haraldur
[quote=SteinarHugi]Þrátt fyrir allar þessar græjur er vélin að hálf kox-a á appelsínugula litnum á TF-JET, sjáið að hann er óeðlilega rauður á ákveðum svæðum. Kemur hálf undarlega út.

SH[/quote]
Já, þetta er hálfglatað hjá þér. Eh, not. Þetta eru mjög flottar myndir.

Re: Arnarvöllur - 28.maí 2011

Póstað: 28. Maí. 2011 21:21:22
eftir Haraldur
Verður leikurinn endurtekinn á morgun, ef veður leyfir?

Re: Arnarvöllur - 28.maí 2011

Póstað: 28. Maí. 2011 21:40:15
eftir Sverrir
[quote=SteinarHugi]Þrátt fyrir allar þessar græjur er vélin að hálf kox-a á appelsínugula litnum á TF-JET, sjáið að hann er óeðlilega rauður á ákveðum svæðum. Kemur hálf undarlega út.[/quote]
Skal skipta við þig á minni 70-200 f4L, hún ræður alveg við þetta. ;)

[quote=Haraldur]Verður leikurinn endurtekinn á morgun, ef veður leyfir?[/quote]
Stefnir ekki í að veðrið leyfi það, því miður.

Re: Arnarvöllur - 28.maí 2011

Póstað: 28. Maí. 2011 22:43:44
eftir Björn G Leifsson
[quote=SteinarHugi]Þetta er Canon EOS 1Ds Mark II body með Canon EF 70-200mm F/2.8L IS mark II linsu og 2x extender. Aðeins meira gler en í iPhone-inum hans Sverris =)

Þrátt fyrir allar þessar græjur er vélin að hálf kox-a á appelsínugula litnum á TF-JET, sjáið að hann er óeðlilega rauður á ákveðum svæðum. Kemur hálf undarlega út.

SH[/quote]
Appelsínuguli liturinn getur virkað mjög misjafn eftir ljósinu sem fellur á hann, virkað rauðari í skuggunum og gulari þar sem dagsljósið er sterkara. Það er af því að dagsljósið (sem kemur ofanað) er mjög blátt, sem er gagnstæður litur við appelsínugult.

Mynd

Þetta er sennilega ástæðan. Svo geta græjurnar (tölva/skjár) sem þú ert að skoða myndirnar í, verið að skemma fyrir þér litasviðið og ýkja þennan mun. Í minni tölvu sé ég bara fínar myndir frá þér. Maður sér að appelsínuguli liturinn er aðeins meira yfir í rautt í skuggunum og gult í háljósum en það er sem sagt alveg eðlilegt fyrirbæri og ekki myndavélinni að kenna.

Mannsaugað/heilinn "leiðréttir" talsvert svona litamun þegar maður er að horfa á þetta í náttúrunni þeas maður sér ekki muninn greinilega fyrr en myndavélin "staðfestir" hann.

Hér er lesning um gagnstæða liti (Complimentary colors)