í gær var sumardagurinn fyrsti á Akureyri. Allnokkur prósent félagsmanna voru fyrir vestan en þá ákváðu þeir sem ekki komust vestur að halda bara svo sem eins og eitt Heimsmeistaramót á Melunum í staðinn.
Þetta Heimsmeistarmót tókst í alla staði ljómandi vel í sól og blíðu og voru áhorfendur fleiri en búist var við
![Very Happy :D](./images/smilies/icon_e_biggrin.gif)
Hér má sjá nokkrar myndir frá umræddu Heimsmeistaramóti, sem verður ábyggilega árviss viðburður - svo vel þótti til takast.
Án gríns var þetta góður dagur og mikið flogið. Gremlininn hans Mumma fór í loftið í fyrsta sinn og stóðst allar væntingar og vel það. Hann flaug reyndar svo hratt að erfitt reyndist að festa hann á "filmu"
![Smile :)](./images/smilies/icon_e_smile.gif)
Kveðjur,
Árni Hrólfur