Fjarstýringa pælingar

Eru ekki allir í stuði!?
Svara
Passamynd
helgirunar
Póstar: 11
Skráður: 3. Des. 2009 06:47:34

Re: Fjarstýringa pælingar

Póstur eftir helgirunar »

Sælir kæru sam-módelmenn...

Er smá að vandræðast með fjarstýringarmál. Vinur minn sem er að byjra í sportinu ætlar að fá sér fjarstýringu og spurningin er hvaða tegund sé heppiegust. Persónulega er ég með 9 rása JR stýringu (35 Mhz) og mér datt í hug að hann fengi sér líka JR upp á naflastreng og að samnýta simma. Er þetta kannski bata bull í mér? Virkar Futaba í JR með nafnlastreng? Hvernig er með naflastreng á milli 35Mhz og 2,4 Ghz ?

öll hjálp vel þegin...
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Fjarstýringa pælingar

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Sé að það er enginn búinn að svara þér.

Í stuttu máli þá er svarið, já, maður á gjarnan að fá sér fjarstýringu af sömu gerð og félagarnir sem maður ætlar að fá hjálp frá.
Það skiptir ekki máli hvort báðar eru á sömu tíðni, þú getur "snúrað" vin þinn þó hann sé með 2,4GHz og þú með 35, lærlingsstýringin sendir ekki, bara kennarastýringin.

Það er (yfirleitt) auðvelt að tengja saman stýringar af sama merki td JR í JR eða Futaba í Futaba.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
helgirunar
Póstar: 11
Skráður: 3. Des. 2009 06:47:34

Re: Fjarstýringa pælingar

Póstur eftir helgirunar »

Takk fyrir svarið...

Er að leita mér að byrjunar stýringu fyrir vin minn.... Ætla að kaupa á HobbyKing síðunni og láta senda, þarf að vera 5 rása og 2.4 Ghz, er einhver með meðmæli með einhverri sérstakri? Hann ætlar bara að nota þetta fyrir flugvélar...
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Fjarstýringa pælingar

Póstur eftir einarak »

við erum nokkrir með Turnigy 9X, og hafa þær reynst mjög vel miðað við verð. http://www.hobbyking.com/hobbyking/stor ... ware_.html

Svo er komin ný útgáfa af henni http://www.hobbyking.com/hobbyking/stor ... dule_.html, en ég get ekki svarað um ágæti hennar þar sem ég hef aldrei prufað slíka, en almennt eru menn ánægðir með hana.
Passamynd
Páll Ágúst
Póstar: 646
Skráður: 2. Maí. 2009 05:00:00

Re: Fjarstýringa pælingar

Póstur eftir Páll Ágúst »

Þessi 6 rása Orange 2,4ghz fær líka fína dóma
http://hobbyking.com/hobbyking/store/__ ... de_2_.html
getur fundið review á youtube :)
Lífið er í loftinu
Þytur á Facebook
Flickr-ið
Passamynd
helgirunar
Póstar: 11
Skráður: 3. Des. 2009 06:47:34

Re: Fjarstýringa pælingar

Póstur eftir helgirunar »

En þessi 6 rása JR? Er einhver með reynslu af henni?

http://www.hobbyking.com/hobbyking/stor ... de_2_.html

Reyndar alveg 180$ sem er töluvert meira en þessi Orange & Turnigy... En ætli hún sé þeim mun betri?
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Fjarstýringa pælingar

Póstur eftir einarak »

Þessa væri þá skynsamlegra að kaupa frá Als Hobbies í bretlandi, kostar nánast það sama þar og töluvert auðveldara að fá þjónustu ef eitthvað amar að.
http://alshobbies.com/shop/lookupstock.php?pc=56191
Svara