Líf og fjör á Arnarvelli í kvöldblíðunni, mikið flogið og mikið fjör.
Re: Arnarvöllur - 10.júlí 2011
Póstað: 11. Júl. 2011 01:36:54
eftir maggikri
Já það er rétt hjá Sverrir, fullt að gerast. Ég og "Siggi 3-D" fórum niður að vatni og Siggi "hoveraði" yfir vatnsborðinu. Þá var kominn 11.07.2011.
Meira seinna
kv
MK
Re: Arnarvöllur - 10.júlí 2011
Póstað: 11. Júl. 2011 09:36:29
eftir Gaui
En -- var hann í bleikum sundbol?
Re: Arnarvöllur - 10.júlí 2011
Póstað: 11. Júl. 2011 10:59:33
eftir maggikri
Snilld! Hvar grefur þú upp allt svona efni? Held að það hafi verið smávegis bleikt í peysunni hjá honum.
kv
MK
Re: Arnarvöllur - 10.júlí 2011
Póstað: 11. Júl. 2011 11:04:55
eftir Sverrir
Þú veist að allir módelmenn þurfa að vera áskrifendur að Wesse!!!
Re: Arnarvöllur - 10.júlí 2011
Póstað: 11. Júl. 2011 14:09:27
eftir lulli
Öflugir!
Ánægður að sjá Cermark Extruna aftur var farinn að halda að hún hefði verið "grounduð" eða
seld svo lítið hefur borið á heni að undanförnu.
Re: Arnarvöllur - 10.júlí 2011
Póstað: 11. Júl. 2011 23:29:08
eftir maggikri
Kíkið á þetta í HD-gæðum 1080p Sverrir á Engli.
Já Lúlli minn Extran er enn á lífi og fer vonandi að sjást meira.
kv
MK
Re: Arnarvöllur - 10.júlí 2011
Póstað: 12. Júl. 2011 09:23:17
eftir Olddog
Engillinn er flottur, en hann flýtur svolítið í lendingunni (þetta er svipað og á Helios sem ég er með) Má ég mæla með Spoilerones 10deg. upp og elevator mix upp svona 10pct af því (varla að elevatorinn sjáist hreyfast). Sjá vefþráð frá Gústa hér að neðan. Engillinn mun þá koma aðeins brattara niður og stein liggur í flerinu,,, ekkert flot og grjót stöðugur. Má hafa aðeins mótor ef vill, og hengja vélina aðeins og hægja þannig verulega á hraðanum í lendingunni. Þræl virkar á Helios. (sem og flestar vélar með létta vænghleðslu)
Re: Arnarvöllur - 10.júlí 2011
Póstað: 12. Júl. 2011 09:45:55
eftir Sverrir
Mótorinn er ekki í gangi og þess vegna þarf ég að taka örlítið í hæðarstýrið í staðinn fyrir að gefa honum smá rafmagn eins og ég geri venjulega. Annars hélt ég að þú ætlaðir að dáðst að slipinu...