Síða 1 af 1
Re: Heimþrá
Póstað: 22. Jún. 2006 13:15:51
eftir Björn G Leifsson
Sit hérna fastur í mígandi rigningu í Osló og horfi á moggaveðurkortið:
Það er á svona stundum sem mann langar ekkert frekar en á Hamranesið eða Eyrarbakkann að fljúga svoldið....
Re: Heimþrá
Póstað: 22. Jún. 2006 13:34:46
eftir maggikri
Sæll, ég kannast við þessa tilfinningu. Veðrið var nú ekkert glæsilegt hérna í gær og í dag(hávaða rok rassgat)Mér skilst að helgin lofi góðu.
kv
MK
Re: Heimþrá
Póstað: 22. Jún. 2006 15:06:41
eftir Agust
Við vorum að fljúga í sól á Hamranesi í gærkvöld. Frekar stífur vindur til að byrja með, en allt í lagi að fljúga. Rjómalogn þegar leið á kvöldið, en þá bilaði hjólastellið
Re: Heimþrá
Póstað: 23. Jún. 2006 00:29:53
eftir Guðni
Já Pittsinn flaug einmitt þetta sama kvöld með nýjum Fuji 32...bensínmótor..
Re: Heimþrá
Póstað: 23. Jún. 2006 01:46:05
eftir Ingþór
ohhh það var stórkostlegt hljóð í mótornum og Pittsinn svakalega flottur, ekki skemmdi ein flottasta lending sem ég hef séð á Pitts (fullscale/módel) sem (litli)Jón sýndi okkur... gaman af því
Svo tókst mér líka að gera tic-toc á þyrlunni minni og soldið chaoz, ótrúlegt hvað pínu kraftaukning gerir...
Ég var farinn að halda að flugmódeláhuginn væri farinn að dofna hjá mér, en svo kom í ljós að það var bara 4 vikur af rigningu sem hafði haldið manni innandyra... sól er sögu ríkari
ha?
ferðu ekki að koma heim Bjössi minn?
Re: Heimþrá
Póstað: 23. Jún. 2006 02:13:46
eftir Sverrir
Til hamingju Jón, hlakka til að sjá þig fljúga gripnum.