Síða 1 af 1

Re: Tristar

Póstað: 24. Feb. 2005 13:51:59
eftir Sverrir
Líst mönnum annars ekki bara vel á nýju vélina hans Péturs?

Sjá myndir í myndasafni: http://myndir.frettavefur.net/thumbnails.php?album=82

Mynd

Re: Tristar

Póstað: 24. Feb. 2005 14:47:32
eftir Böðvar
Jú það má nú segja glæsileg þota. Eitthvað sem ma ma ba ba bara veeeeerður að sjá þegar Pétur taxerar þotunni út á brautarenda í fyrsta sinn. Gefur botngjöf og sjá risaþotuna bruna með vaxandi hraða eftir brautinni og tekur í síðan í loooooooooooftið.

Til hamingju Pétur :)

Re: Tristar

Póstað: 24. Feb. 2005 16:18:17
eftir Böðvar
Því miður er ekki pláss á næsta fundi þyts. Þessi módel eru alltaf að stækka og Veiðibjallan hanns Jakobs fyllir nánast alveg út í fundaraðstöðuna. það verður varla pláss fyrir fundarmen hvað þá risa þotu, en að fá þotuna á Apríl fundinn væri í fínu lagi, það er að segja ef Pétur er tilbúinn til þess. ;)

Re: Tristar

Póstað: 24. Feb. 2005 17:42:18
eftir Sverrir
Böðvar þú gætir kannski beðið formann félagsins að ræða þessi mál við ritarann við tækifæri. Þessi skilaboð koma frá gjaldkeranum ;)

En eins og þú segir ef svona heldur áfram þá verðum við að fara að breyta eitthvað til vegna plássleysis.

Re: Tristar

Póstað: 24. Feb. 2005 18:22:49
eftir Ingþór
þurfum við ekki bara að slá tvær flugur í einu höggi, á ekki að leggja niður reykjavíkur flugvöll fyrir einka og áætlunarflug? gætum við ekki nýtt gömlu flugstöðina og fluggarða sem félagsaðstöðu og brautirnar í "leikina" okkar?

Re: Tristar

Póstað: 24. Feb. 2005 18:54:35
eftir Sverrir
Ef aðeins :D

Verður að líta á fundinn á fimmtudaginn kemur og heyra hvaða fréttir flugvallarnefnd færir okkur. Hver veit, kannski leynist nýr flugvöllur í Vatnsmýrinni ;)

Re: Tristar

Póstað: 24. Feb. 2005 21:24:07
eftir ErlingJ
Ég óska Pétri til hamingju með þennann glæsi grip
og hlakka lika til að sjá cesnu 182 með 4 metra vænghafi.
er ekki anars að koma eitt svoleiðis ti Islands??????

Re: Tristar

Póstað: 24. Feb. 2005 21:34:08
eftir Sverrir
Skv. mjög áræðanlegum heimildum þá mun svo vera.