Flugmálastjóri Grindavíkur fyrirskipaði í morgun að flugvöllur bæjarins yrði sleginn og hirtur. Mér rann blóðið til skyldunar og svaraði kallinu.
Allt annað líf:
Í síðustu viku var fyrsta þotuflugið í Grindavík framkvæmt af undirrituðum, vindátt var hagstæð og hægt að fara í loftið til austurs.
Í dag var vestanátt sem gerir aðflugið svolítið krefjandi sökum þess að húsið mitt er við brautarendann:
Eftir að búið var að færa GOA (God of Aviation) fórn, kveikja á reykelsi og signa sig, var þotuhreyfillinn ræstur og Intro fór í loftið
Frúin var fengin til að documenta atburðinn, hún týndi Intro nokkrum sinnum en þetta er þó sönnun þess að það er hægt að lenda þotu til vesturs bak við hús...
(Available in HD)
Samtals voru tekin 4 flug á Extru300 og 3 á Intro - frábær dagur
Kveðja,
Ingólfur
Re: Grindavík - 24.ágúst 2011
Póstað: 24. Ágú. 2011 22:00:56
eftir Jónas J
Góður !! Bara með flugbraut í garðinum he he he
Re: Grindavík - 24.ágúst 2011
Póstað: 24. Ágú. 2011 22:03:32
eftir Sverrir
Flottir brautarhattar svo sé ég að það er tvistur á fæti þarna!
Re: Grindavík - 24.ágúst 2011
Póstað: 24. Ágú. 2011 22:16:07
eftir Þórir T
Smá forvitni, hvað myndi tryggingafélagið segja ef einhvað færi á annan hátt en ætlað væri? Við hálf flúðum með fyrsta völlinn okkar hér á Selfossi, niður á strönd, þó var hann töluvert fjær en td gamli völlurinn í Kef...
Re: Grindavík - 24.ágúst 2011
Póstað: 24. Ágú. 2011 22:42:01
eftir Ágúst Borgþórsson
[quote=Sverrir]Flottir brautarhattar svo sé ég að það er tvistur á fæti þarna! [/quote]
Ég afrekaði það í gamla daga í Vestm.eyjum að lenda á hausnum á svona tvisthrúgu
Re: Grindavík - 24.ágúst 2011
Póstað: 25. Ágú. 2011 08:47:01
eftir maggikri
[quote=Þórir T]Smá forvitni, hvað myndi tryggingafélagið segja ef einhvað færi á annan hátt en ætlað væri? Við hálf flúðum með fyrsta völlinn okkar hér á Selfossi, niður á strönd, þó var hann töluvert fjær en td gamli völlurinn í Kef...[/quote]
Flottur völlur hjá þér INE.
Þórir: Varðandi tryggingar þá er þetta heima hjá INE, dekkar þá ekki bara "heimilistryggingin" ef allt færi á annan veg en ætlað er. Þetta er líka "einkavöllur". En ég veit alveg hvað þú átt við Þórir.
kv
MK
Re: Grindavík - 24.ágúst 2011
Póstað: 25. Ágú. 2011 11:49:52
eftir INE
Það segir sjálft að sjálfssögðu er verið að bjóða hættunni heim þegar að það er verið að fljúgja módellum nærri byggð.
Sem betur fer þá bý ég í útjaðri Grindavíkur og það svæði sem ég flý yfir eru mannlaus tún, hraun og tjarnir. Það sem mig mest varðar um er að valda ekki tjóni á fólki.
Hinsvegar að þegar að ég lendi til vestur þá er aðflugið yfir hús mitt og tveggja nágranna minna. Þetta fólk hefur gaman af þessu flug brölti mínu, þeim er augljóst að ef ég veld eignatjóni þá er ég borgunarmaður fyrir það.
Hvað tryggingarnar segja: Tja... tryggingasalinn minn kemur nánast daglega að horfa á mig fljúga og hann segir allt gott, er með rollur í húsi hér rétt sunnann við húsið mitt.
Ávallt gott að hafa umræðu um öryggi.
Kveðja,
Ingolfur.
Re: Grindavík - 24.ágúst 2011
Póstað: 28. Ágú. 2011 22:48:05
eftir INE
Jæja nú er nóg komið.
Ég hóf þennann þráð og áskil mér rétt til að enda hann.
Þeir sem hafa áhuga að ræða þessi mál getað hafið nýjann þráð en hafið hugfast að það eru fleiri en bara við fastagestir sem skoða þennann vef og það er ekkert sérstaklega aðlaðandi fyrir þá sem eru að kynna sér hobbyið okkar að lesa neikvæða pósta.
Gangi okkur öllum vel og höfum sem mest gaman af þessu áhugamáli okkar.
Ingólfur.
Re: Grindavík - 24.ágúst 2011
Póstað: 28. Ágú. 2011 23:27:16
eftir Sverrir
Umræðum um tryggingamál hefur verið splittað yfir á annan þráð.
Re: Grindavík - 24.ágúst 2011
Póstað: 29. Ágú. 2011 11:42:34
eftir Björn G Leifsson
Ég kom heim til Ingólfs fyrir nokkru og get staðfest að hann býr í hálfgerðri paradís módelflugmannsins. Væri alveg til í að hjálpa honum einhverja nóttina að saga niður nokkra illa staðsetta ljósastaura