Síða 1 af 1

Re: 15.08.2006 - Samantekt frá Akureyri og myndir

Póstað: 15. Ágú. 2006 12:58:07
eftir Sverrir
Komnar eru inn myndir frá flugkomunni á Akureyri og má finna þær í Myndasafninu. Einnig bárust nokkrar myndir frá Vilhjálmi og Steinþóri og má finna þær á sama stað. Þar má m.a. sjá myndir frá Piper Cub mótinu sem hætt var við að aflýsa, myndir af Lancaster í eigu Frímanns og af Extra 300 svo nokkuð sé nefnt. Einnig er hægt að sjá fleiri myndir frá Akureyri í myndasafni þeirra norðanmanna en það er að finna á slóðinni http://flugmodel.is/fmfamyndir/.

Mikið fjör var á Akureyri um helgina og voru þó nokkrir mættir snemma á föstudeginum til að nýta sér góða veðrið og fljúga. Einnig mætti fóðurbíll frá svínabúi á staðnum og dældi bakkelsi í menn þannig að mikið fjör var hjá viðstöddum.

Laugardagurinn var svo tekinn snemma og byrjuðu menn á að skila inn sendum í sendagæsluna en dagurinn byrjaði með sól og blíðu sem gaf forsmekk að því sem skyldi verða.

Margt var um fallegar vélar á svæðinu og má sjá flestar ef ekki allar í myndasafninu ásamt flugmyndum. Án þess að á neinn sé hallað þá vöktu eftirtaldar vélar mikla athygli, Sopwith Pub, Gee Bee, Yak 55, Yak 54, F-15, 3x Extra vélar, samflug á Taylorcraft. Að sjálfsögðu er þetta hlutlægt mat ritstjóra og þarf ekki að endurspegla skoðun meirihluta módelmanna sem á svæðinu voru :-)

Dagurinn gekk að mestu áfallalaust fyrir sig en þó fór Big Stik 60 niður eftir að vængurinn ákvað að fljúga sína leið, sem betur fer kom hún ekki niður á neinu nema jörðinni en vængboltar gáfu sig með þessum afleiðingum.

Um kvöldið var svo komið að fjöri með grilli en Kristinn(kip) spilaði dinnermúsík undir við borðhaldið og rann maturinn vel niður við þann undirleik. Eftir mat var svo komið að meiri skemmtun en hin víðförulli írski þjóðlagasöngvari Michael Black kom eftir mat og skemmti viðstöddum með söng og undirleik og hlaut hann góðar undirtektir og nýttu þó nokkuð margir sér tækifærið og fjárfestu í disk sem hann gaf sérstaklega út fyrir heimsóknina.

Í það heila var þetta frábær dagur og á Flugmódelfélag Akureyrar og félagsmenn þess heiður skilið fyrir að halda þessa frábæru flugkomu ár eftir ár. Þeir sem heima sátu, og aðrir, hafa nú rétt ár til að undirbúa sig fyrir næstu flugkomu en hún verður haldinn laugardaginn 11.ágúst 2007.

Minnum á atburði næstu helgar en þá verður nóg að gera. Dagurinn hefst upp á Tungubökkum kl.10 með flugkomu skv. IMAA reglum og svo hinni árlegu Fréttavefsflugkomu sem hefst á Eyrarbakka kl.13.

Re: 15.08.2006 - Samantekt frá Akureyri og myndir

Póstað: 15. Ágú. 2006 15:07:07
eftir Agust
Hér stendur:



"Skilyrði:
Öll módel í 1/4 skala eða stærri.
Annars gildir:
Vænghaf einþekja 200 cm og yfir.
Vænghaf tvíþekja 150 cm og yfir
Þotur, lengd + vænghaf 350 cm og yfir"



Ég skil IMA reglurnar pínulítið öðruvísi:

Er þetta ekki í öfugri röð. Skilyrði um vænghaf kemur fyrst, en ef vænghaf nær ekki uppgefnum málum, þá kemur krafan um a.m.k. 1/4 skala.
Þannig þarf módel ekki að vera skalamódel af þekktri fyrirmynd ef það nær kröfum um vænghaf. Það eru mörg módel með stærra vænghaf en 2 metra sem ekki eru skalamódel, svo sem hin fræga Rauðka sem var fastagestur á Kvartskalamótinu.

Skalamódel af þekktri fyrirmynd þarf ekki að uppfylla kröfur um vænghaf ef það er a.m.k. 1/4 skala. (Dæmi: Gee Bee).


Kanski er þetta bara hártogun, en
hvernig túlka lögfræðingar flugmódelmanna eftirfarandi sem er á IMAA síðunni:

What is Large or Giant Scale?

The concept of large or giant scale is generally considered to apply to radio controlled model aircraft with minimum wingspans of eighty (80) inches for monoplanes and sixty (60) inches for multi-wing aircraft. Ducted Fan aircraft with one hundred forty (140) inches combined length and width, measured from wing tip to wing tip at the widest point perpendicular to the fuselage and added to the length of the fuselage, excluding any protrusions.

Quarter (1/4) scale replica's or larger with proper documentation (minimum 3 view drawing of an actual person carrying aircraft) which do not fit the size requirements will be permitted. However, the concept does not encompass radio controlled model aircraft so large as to have the potential of carrying a human being.

Re: 15.08.2006 - Samantekt frá Akureyri og myndir

Póstað: 15. Ágú. 2006 15:24:14
eftir Sverrir
Mér sýnist þú hafa neglt þetta nokkuð vel.
Ég held að það séu ekki 100 í hættunni eða það vona ég alla veganna :)

Annars gleymdi ég að nefna að menn geta skilið eftir ummæli um myndir í myndaalbúminu.

Re: 15.08.2006 - Samantekt frá Akureyri og myndir

Póstað: 15. Ágú. 2006 15:37:46
eftir Agust
Ef ég þekki Einar Pál rétt, þá er hann ekki með málbandið á lofti....

Aðalatriðið er að hafa ánægju af flugkomu stærri módela, sem uppfylla skilyrðin að mestu leyti. Mjög litlar rellur eiga þó ekki heima á mótinu.

Það er reyndar spurning varðandi svifflugur, með eða án mótors. Þær eru velflestar með vænghaf yfir tvo metra.