Ævintýraflug

Kanntu skemmtilegar sögur? Eða veistu um sniðug vídeó?
Svara
Passamynd
Gauinn
Póstar: 603
Skráður: 29. Maí. 2012 23:24:07

Re: Ævintýraflug

Póstur eftir Gauinn »

Kunningi minn sagði mér eftirfarandi sögu:

Við skruppum norður á Húsavík, lentum á flugvellinum í Aðaldal.
Það sem það var mótvindur norður, sáum við að við þyrftum að taka bensín þarna.
Þú veist hvernig þetta er á svona smáflugvöllum, bensín á tunnum, og ekki alltaf tryggt að það sé hreint.
Nú, svo fórum við til baka suður, þú veist þetta var svona eins hreifils vél, nema hvað, vélin fer að hiksta yfir Holtavörðuheiðinni, nú voru góð ráð dýr.
Þú veist, mótorinn rétt fyrir framan lappirnar á manni, svo ég skreið fram í meðan vélin sveif, skrúfaði blöndunginn af og í sundur, blés úr honum skýtinn.
Vitanlega var vélin orðin lágt á flugi þegar ég var að klára, svo ég varð að flýta mér mikið.
Nema hvað, ég set blöndinginn öfugann á.
Varð að bakka alla leið til Reykjavíkur.
Langar að vita miklu meira!
Svara