Litlir plastgírar?

Kanntu brögð og brellur sem fleiri hafa gagn af?
Post Reply
User avatar
HjorturG
Posts: 188
Joined: 15. Apr. 2005 17:01:03

Re: Litlir plastgírar?

Post by HjorturG »

Sælir félagar.

Veit einhver hér hvar hægt sé að nálgast litla plastgíra í ýmsum stærðum? Þarf að nota þannig í smá project en finn hvergi hvar hægt sé að nálgast þannig á íslandi.
User avatar
Gauinn
Posts: 603
Joined: 29. May. 2012 23:24:07

Re: Litlir plastgírar?

Post by Gauinn »

Ég sá svona allskonar gíradót, Smábílar ehf. Bíldshöfða 16 5868667 Þetta er með best földu fyrirtækjum á Íslandi, en hann er einmitt með opið eftir 18 á þriðjudögum.
Athugaðu það.
Langar að vita miklu meira!
User avatar
Messarinn
Posts: 936
Joined: 1. Apr. 2005 12:44:30

Re: Litlir plastgírar?

Post by Messarinn »

Sæll Hjörtur

Ég hef rifið prentara og ljósritunar vélar sem á að henda og eru oft í nytja gámum á endurvinnslu stöðvum t.d.
í þeim eru fullt af plast tannhjólum,reimum og mótorum og öðru mekanói sem vert er að hirða í RC smíðina

Kv GH
Guðmundur Haraldsson Flugmódelfélag Akureyrar

A RAF engineering officers joke: Whats the difference between a fighter pilot and his aircraft? The plane stops whining when you shut down the engines.
User avatar
Bquist
Posts: 10
Joined: 1. Jul. 2012 13:07:59

Re: Litlir plastgírar?

Post by Bquist »

það er líka eitthvað til í handverkshúsinu, Bolholti
User avatar
Gauinn
Posts: 603
Joined: 29. May. 2012 23:24:07

Re: Litlir plastgírar?

Post by Gauinn »

Einhver umræða var hérna um tannhjól, ég var í heimsókn áðan, þar voru tvær saumavélar, bilaðar, sem átti að henda, önnur er svona eitthvað sem heitir "overlook" og það er sko flókið dæmi. geri bara ráð fyrir að það sé mikið af tannhjólum, öxlum, skrúum og öðru fíngerðu dóti, hugsandi til þráðarins hérna tók ég það að mér að henda þessu. Ef einhver hefur áhuga þá get ég alveg tekið þetta með mér á Arnarvöll eða á Hamranesið seinna, en þar sem ég stend í flutningum, þá set ég þær í ruslið ef enginn vill fljótlega eftir helgi. Ég verð auðvitað fyrir norðann um helgina, þannig að SMS væri best.
Bk. Gauinn 8981503
Langar að vita miklu meira!
Post Reply