Síða 1 af 1

Re: Hangar 9 ARF P-47 Thunderbolt

Póstað: 12. Okt. 2006 00:10:43
eftir Sverrir
Hangar 9 eru þekktir fyrir að vera með gæða flugmódel og Þrumufleygurinn er þar engin undantekning. Smíðin(samsetningin) er frekar einföld og þægileg og ekki mikil ástæða til að rekja hana hér en miðað við hversu fljótleg hún var þá er óhætt að mæla með þessu kitti og öðrum í svipuðum flokki frá Hangar 9.

Smíðin fór að mestu fram eftir leiðbeiningunum en þó voru nokkrar breytingar gerðar.


T.d. var settur RCV 91 fjórgengismótor í nefið, en þeir eru talsvert nettari á hæðina heldur en sambærilegir fjórgengismótorar.
Mynd

Því þurfti að gera ný göt fyrir mótorfestingarnar.
Mynd

Hér sést hve vel mótorinn passar á eldvegginn.
Mynd

Bensíntankurinn kemur samansettur og er meira að segja blingaður upp. Bætt var við áfyllingarröri.
Mynd

Nei þetta er ekki lakkrís, stjórnvírarnir út í stélfletina voru eini hlutirnir sem virkilega var hægt að finna að, þeir voru frekar deigir.
Mynd

Einhver staðar þarf heita loftið að komast út og einnig útblásturinn.
Mynd
Þeir sem sjá ekki hvar geta litið hér.

Sett var milliloft, eða gólf eftir því á hvernig það er litið, fyrir flugmanninn.
Mynd

Hér sést flugmaðurinn sáttur á sínum stað.
Mynd

Tannprúður með eindæmum.
Mynd

Einnig var remote glow sett.
Mynd

Og hér er gripurinn samankominn úti í blíðunni.
Mynd

Gripurinn kominn út á flugbraut í blíðunni.
Mynd

Ekki þurfti hún langa flugbraut!
Mynd

Vrrrrúúúmmmm. Stórskemmtilegt hljóð í RCV mótornum.
Mynd

Lending.
Mynd

:cool:
Mynd

Að loknum góðum degi.
Mynd

Hægt er að sjá fleiri myndir af smíðinni hérna og fluginu hér.

Re: Hangar 9 ARF P-47 Thunderbolt

Póstað: 12. Okt. 2006 11:56:08
eftir Árni H
Til hamingju með þessa - þessi er virkilega flott!

Re: Hangar 9 ARF P-47 Thunderbolt

Póstað: 12. Okt. 2006 12:04:55
eftir Sverrir
Þú óskar Birni til hamingju næst þegar þú sérð hann ;)

Re: Hangar 9 ARF P-47 Thunderbolt

Póstað: 12. Okt. 2006 15:33:41
eftir Björn G Leifsson
Eki mér,,, ég var *næstum* búinn að kaupa þessa.

Hefði kannski átt að gera það:)

Re: Hangar 9 ARF P-47 Thunderbolt

Póstað: 12. Okt. 2006 15:43:57
eftir Sverrir
Já mikið var maður „vitlaus“ að selja þetta en það er víst ekki hægt að safna endalaust, sérstaklega ekki þegar manni vantaði smá pening fyrir meira módeldóti ;)
Munar mestu um að hún skuli vera komin í umferð öðrum til ánægju og yndisauka.

Re: Hangar 9 ARF P-47 Thunderbolt

Póstað: 12. Okt. 2006 21:38:49
eftir Björn G Leifsson
Maður getur alltaf á sig dóti bætt... og þó...Ég var að fatta það að skúrinn hjá mér er fullur af verkefnum sem bíða annaðhvort viðgerðar eða að klára nýsmíði. Þess vegna ætla ég að biðja ykkur að vera ekki að freista mín of mikið á næstunni með módeltilboðum :D

Re: Hangar 9 ARF P-47 Thunderbolt

Póstað: 13. Okt. 2006 01:08:41
eftir Sverrir
Þannig að núna væri ekki rétti tíminn til að auglýsa gullfallega Hurricane og Saito 100 ;)

Hérna er annars komið smá vídeó af fyrsta fluginu á Thunderbolt > http://video.frettavefur.net/H9_P47.wmv


Og einhverjum árum síðar birtist það á YouTube! ;)


Re: Hangar 9 ARF P-47 Thunderbolt

Póstað: 18. Okt. 2006 23:00:32
eftir Jón Björgvin
en afhverju þýskur flug maður hmmm maður spir sig :/

Re: Hangar 9 ARF P-47 Thunderbolt

Póstað: 18. Okt. 2006 23:41:19
eftir Sverrir
Það fer eftir því hvort hann er þýskur njósnari á amerískri vél að smygla sér til Bretlands eða þýskur andspyrnumaður að berjast gegn Hitler og félögum ;)

Re: Hangar 9 ARF P-47 Thunderbolt

Póstað: 24. Nóv. 2006 10:47:07
eftir Sverrir
Samanburður á Saito 91, RCV 91 og OS 91.
Mynd