Síða 1 af 16
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 18. Okt. 2012 23:59:32
eftir Sverrir
Jæja, þá er sólin farin að lækka á lofti og komin tími til að hefja vetrarverkin. Vélin er búin að bíða róleg eftir því að komast upp á smíðaborðið síðan 2008. Þetta er svokallað
short kit frá Island Models en í því er að finna skrokkrif, vængrif og minni hluti. Smiðurinn sér svo um að útvega klæðningu, langbönd, vængsperrur og aðra lengri hluti.
Vænghaf: 333cm
Lengd: 180cm
Þyngd: ~7kg
Myndarlegasta teikning af skrokknum.
Best að byrja á einhverju hæfilega stóru til að hita sig upp, hluti af stélinu.
Hmmmmm... :/
Kannski betra svona.
Þokast áfram.
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 19. Okt. 2012 08:18:07
eftir Flugvelapabbi
Glæsilegt hja þer Sverrir, það verður gaman að sja þennan fugl
hja þer þegar liður að vori. Það verður kannski svifflug sumar a
komandi sumri, eg er að vinna i þremur flugum sem klarast fyrir jol.
Kv
Einar Pall
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 19. Okt. 2012 09:07:25
eftir Gaui
Það er greinilega komin á keppni! Grunau Baby klárast í vetur, svo það verða svifflugur á mótum næsta sumars. Eins gott að einhver verði með togvélar í gangi!
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 20. Okt. 2012 05:47:11
eftir maggikri
[quote=Gaui]Það er greinilega komin á keppni! Grunau Baby klárast í vetur, svo það verða svifflugur á mótum næsta sumars. Eins gott að einhver verði með togvélar í gangi!
[/quote]
Gaui, eru ekki til 7 stk af fjósamanninum, það ætti nú að duga eitthvað. Svo eru nú á leiðinni hérna á nesinu einhverjar sem ættu að geta togað.
kv
MK
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 20. Okt. 2012 12:32:13
eftir Björn G Leifsson
[quote=maggikri]
Gaui, eru ekki til 7 stk af fjósamanninum, það ætti nú að duga eitthvað. Svo eru nú á leiðinni hérna á nesinu einhverjar sem ættu að geta togað.
kv
MK[/quote]
Án þess að lofa neinu, þá má upplýsa að hálfsmíðaður fjósamaður er kominn á borðið í Walleyhouse Aeroplane Factory. Svo er að sjá hvort góðu fyrirheitin um að setja skipulagða föndurdaga á almanakið geta haldið í vetur :/
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 20. Okt. 2012 13:41:37
eftir Árni H
Það verður magnað að sjá tvær svona stórar svifflugur saman! Flott hjá þér, Sverrir!
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 20. Okt. 2012 15:04:01
eftir maggikri
Flott þetta smíðaborð! Enginn að pæla í vinnunni og hönnun á svona flottu smíðaborði(broskarl).
kv
MK
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 20. Okt. 2012 19:41:24
eftir Sverrir
Takk, takk. Já Maggi þetta er langbesta nýtingin á hurð sem hægt er að hugsa sér!
Mörgum listum, sögunum, pússunum og límingum síðar!
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 20. Okt. 2012 22:45:51
eftir Gaui
Þetta lúkkar flott.
Ég þarf að fara að klára vængina mína svo þú verðir ekki á undan!
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 21. Okt. 2012 00:18:43
eftir Sverrir
Haha, þá mátt nú vera ansi lengi að svo það gerist.